Erum að kroppa ágætlega á Víkinni

Ísfisktogarinn Vestmannaey VE landaði fullfermi í Þorlákshöfn sl. laugardag. Aflinn var mest þorskur og ýsa en einnig var dálítið af ufsa og löngu. Birgir Þór Sverrisson skipstjóri segir í samtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar að aflast hafi jafnt og vel í veiðiferðinni. „Við vorum að veiðum á Péturey og Vík, tókum eitt hol á Höfða og fengum síðan ýsu á Stokksnesgrunni. Þetta var stuttur túr en stímin voru býsna löng. Við sáum glitta í sól í túrnum og það var gleðiefni og hressti alla um borð. Hjá okkur ríkir kátína ef hitinn fer yfir 10 gráður. Við fórum út strax eftir löndun og erum nú að kroppa ágætlega á Víkinni,“ segir Birgir Þór.

Nýjustu fréttir

Helgi Rúnar hefur fylgst með Kveikjum neistann frá upphafi
Hafsteinn Þórólfsson syngur eyjaperlur í Eldheimum
Allison Clark í úrvalsliði Bestu deildar kvenna hjá Fótbolta.net
Blásið til sóknar í tónlistinni
Jón Þór vill yfirferð á verklagi eftir úrskurðina
Skáknámskeið fyrir fullorðna byrjendur hefst í nóvember
Eyþór treystir verklagi bæjarins – aðrir oddvitar vísa til trúnaðar
Vísindin að baki Kveikjum neistann 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.