ESB-aðild gæti fært störf og verðmæti úr landi að mati SFS
Sjom_DSC_7709
Á sjónum. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS, hafa birt þriðju og síðustu greiningu sína um möguleg áhrif inngöngu Íslands í Evrópusambandið á íslenskan sjávarútveg.

Í greiningunni er lögð áhersla á að verðmætasköpun greinarinnar byggist ekki aðeins á þeim fiski sem dreginn er úr sjó heldur á samþættri virðiskeðju veiða, vinnslu og markaðssetningar. Sjávarútvegurinn skapi þannig störf og útflutningstekjur langt út fyrir sjálfar veiðarnar.

SFS telja að aðild að ESB gæti haft áhrif á alla þessa virðiskeðju. Aflaheimildir Íslands gætu skerðst, opnað gæti verið fyrir aukið erlent eignarhald og samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja breyst gagnvart sjávarútvegi innan ESB sem nýtur opinberra styrkja.

Samtökin benda á að ekki sé nóg að tryggja að veiðar haldi áfram við Ísland eða að aflaheimildir verði skráðar hér á landi. Skipti eignarhald, stjórnun eða vinnsla um hendur geti störf, skatttekjur og önnur verðmætasköpun færst úr landi.

Að mati SFS þarf því, áður en kosið verður um framhald aðildarviðræðna við ESB, að liggja skýrt fyrir hvaða áhrif mögulegar breytingar gætu haft á útflutningstekjur, störf, verðmætasköpun og samfélög um allt land.

Þetta er þriðja og síðasta greining SFS í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst. Í fyrri greiningunum var fjallað um yfirráð Íslands yfir fiskveiðiauðlindinni og möguleg áhrif ESB-aðildar á erlent eignarhald í sjávarútvegi.

Greininguna má nálgast á vef SFS.

Nýjustu fréttir

ESB-aðild gæti fært störf og verðmæti úr landi að mati SFS
Eyjakonur geta endurheimt þriðja sætið
Færri íbúðir og minna byggingarmagn við Strandveg 44
Bergey með fínasta karfa
Tilkynntur til barnaverndar eftir mynd af feðgum á veiðum
Norconsult metur fýsileika og kostnað við Eyjagöng
Fjaran afhjúpar gamla leyndardóma
Skólastarf hefst á ný í GRV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.