Ester Óskars ekki meira með í vetur
Vilmar og Ester

ÍBV mætti Haukum um síðustu helgi en leikurinn endaði mér jafntefli. Það vakti athygli að Ester Óskarsdóttir var skráð liðstjóri á leikskýrslu liðsins. Ástæðan fyrir því að Ester á von á barni í júlí og hefur því lokið keppni í Olísdeildinni í vetur. Ester og Magnús Stefánsson eiga fyrir eina dóttur og er því mikil hamingja á heimilinu. Ester er þó ekki hætt öllum afskiptum af liðinu en hún ætlar sér að koma að því með öðrum hætti. „Nei, þær losna ekki við mig svona auðveldlega, ég ætla að gera það sem ég geti og sinna þeim verkefnum sem mér verða falin,“ sagði Ester í samtali við Eyjafréttir.

Eyjafréttir óska Ester og Magga til hamingju.

Nýjustu fréttir

Sunnudagsmorgunn með alþjóðlegum blæ
Um 8000 farþegar með tíu skemmtiferðaskipum
Tvö skemmtiferðaskip í blíðunni í Vestmannaeyjum
Fyrstu spár lofa góðu fyrir Þjóðhátíð
Skiptu 3.000 tonnum af makríl fyrir 1.400 tonn af þorski
Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax
Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.