október, 2018

lau20okt20:3023:30Alþýðuhúsið: Eyþór Ingi og allir hinir20:30 - 23:30

Lesa meira

Um viðburð

Það er ekkert lát á vinsældum Eyþórs Inga. Uppselt víðsvegar um landið og kemur hann nú fram í fyrsta skipti í Alþýðuhúsinu i Vestmannaeyjum. Alþýðuhúsið er að ganga í endurnýjun lífdaga og verður eitt best búna tónleikahús landsins þegar starfsemi hefst í haust. Það er þvi með stolti sem við kynnum komu Eyþórs Inga til okkar

Eyþór Ingi er án efa einn af okkar fremstu söngvurum í dag. Hann hefur einnig getið sér gott orð fyrir að vera mögnuð eftirherma. Hér er á ferðinni alveg hreint mögnuð blanda af þessu tvennu og gott betur. Eyþór hefur farið sigurför um landið, einn síns liðs, með píanóið, gítarinn og röddina að vopni.

“Eitt Skemmtilegasta show sem ég hef farið á”

– Ívar Guðmundsson

“Frábærir tónleikar…svo er líka gott að gráta af hlátri sannur listamaður”

– Siggi Sigurjóns

“Frábær skemmtun , söngur, sögur og eftirhermur á hemsmælikvarða. Mæli með þessu fyrir alla. Eyþór er æðislegur”

Rúnar Freyr (Gíslason)

“Salurinn bókstaflega veltist um af hlátri. það er klárt mál að ADHD hefur aldrei verið skemmtilegra.”

– Bleikt & Dv

“Þrátt fyrir allan hláturinn og grínið þá stendur uppúr kvöld með einstökum listamanni. Hann kom td. verulega á óvart sem gítar og píanóleikari, sem söngvari er hann á öðru leveli en flestir og lagavalið var einstaklega gott.” -Rúnar Eff

MIÐASALAN ER HAFIN Á MIDI.IS

Við seljum líkt og síðast á borð. Núna kaupir þú þau beint á midi.is

4 manna
6 manna
8 manna
10 manna

Tími

(Laugardagur) 20:30 - 23:30

X