Eyjablikksmótið verður haldið í Íþróttamiðstöðinni um helgina. Mótið hefst í dag, föstudag og lýkur á morgun, laugardag. Á mótinu leika stelpur sem fæddar eru árið 2010 og leika í 5.flokki kvenna yngri. Fyrstu leikir hefjast kl.15:40 í dag og leikið er til 21:00. Í fyrramálið hefjast leikir kl.8:40 og mótinu lýkur svo klukkan 15:00. Áhugasamir eru hvattir til að kíkja við í Íþróttamiðstöðinni og fylgjast með stjörnum framtíðarinnar á parketinu.
Hérna er leikjaplan mótsins: https://cuptournament.torneopal.com/taso/sarja.php?turnaus=460_0003&sarja=5kvY&ottelut=1
Hérna er hægt að fylgjast með stöðu deilda í mótinu: https://cuptournament.torneopal.com/taso/sarja.php?turnaus=460_0003&sarja=5kvY




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.