Eyjafólk áberandi á Íslandsmóti í Crossfit
Íslandsmótið í CrossFit var haldið í sjötta sinn um helgina en mótið fór fram í íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi. Eins og svo oft áður þá átti CrossFit Eyjar þó nokkra fulltrúa á mótinu sem komust á verðlaunapall. Huginn Egilsson hafnaði í öðru sæti í flokki 45-49 ára, Elías Árni Jónsson varð þriðji í flokki 40-44 ára en Magnús Gíslason fimmti. Í flokki 50 ára og eldri hafnaði Gísli Foster Hjartarson í þriðja sæti. Í flokki 45-49 ára kvenna var Ingibjörg Jónsdóttir í þriðja sæti og Jóhanna Jóhannsdóttir í fjórða sæti. Glæsilegur árangur hjá okkar fólki.

Nýjustu fréttir

VestExpo27 verður haldin í Goslokavikunni
Mótorarnir pantaðir en fjármögnun ótryggð
Framkvæmdir og ferjusigling – myndband
Svava Kristín til liðs við Eyjafréttir
Frá Vestmannaeyjum á borð neytenda í Kína
Kalla eftir sjónarmiðum um atvinnulíf í Eyjum
Gengu yfir Fimmvörðuháls í blíðskaparveðri
Kynntu ráðherra sérstöðu íslensks saltfisks í Portúgal
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.