Vestmannaeyjar og Reykjavík vestur mættust í nýju spurningaþáttunum ,,Landsleikunum” sem voru í beinni útsendingu á RÚV í gærkvöldi. Það voru þau Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri, Guðný Geirsdóttir, markvörður ÍBV í knattspyrnu, og Guðjón Smári Smárason útvarpsmaður kepptu fyrir hönd Vestmannaeyja.
Keppnin var afar jöfn og aðeins eitt stig skildi liðin að fyrir lokaspurninguna. Þá var staðan 24–23, Reykjavík vestur í vil. Í síðustu spurningunni jókst munurinn og lauk viðureigninni með sigri Reykjavíkur vestur, 39–29.
Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, Laufey Haraldsdóttir og Guðmundur Felixson skipuðu sigurliðið.

Í Landsleikunum spreyta fulltrúar bæjarfélaga víðs vegar að af landinu sig á spurningum, heilabrotum og ýmsum þrautum. Guðmundur Pálsson og Sigrún Ósk Kristjánsdóttir stýra þáttunum, sem fara fram í beinni útsendingu.
Viðureignin er aðgengileg í spilara RÚV.