Eyjakonan Hrafnhildur Ýr dúxaði
Dúxinn Hrafnhildur Ýr ásamt Sigursveini aðstoðarskólameistara og Soffíu skólameistara. Ljósmynd/Jón Özur Snorrason.

Vestmannaeyingurinn Hrafnhildur Ýr Steinsdóttir er dúx Fjölbrautaskóla Suðurlands á nýliðinni vorönn. Fjölmennasta brautskráning í sögu skólans fór fram í gær og vegna umfangsins var athöfnin flutt í íþróttahúsið Iðu.

Frá þessu er greint á sunnlenska.is en alls útskrifuðust 155 nemendur af 13 námsbrautum, 103 stúdentar af bóknámsbrautum, 43 af öðrum brautum og 9 af verknámsbrautum með stúdentsprófi.

Bókaverðlaun voru afhent fyrir einstakar námsgreinar og dreifðust á marga nemendur en dúx skólans var Hrafnhildur Ýr með heildareinkunnina 9,85. Hrafnhildur Ýr og Jasson Sanchez hlutu námsstyrk frá Hollvarðasamtökum FSu, sem Sigþrúður Harðardóttir, stjórnarkona í samtökunum, afhenti.

Hrafnhildur Ýr er dóttir Maríu Rósar Friðriksdóttur og  Steins Þórhallssonar.

Af sunnlenska.is

https://www.sunnlenska.is/frettir/hrafnhildur-yr-duxadi-i-fsu/

 

 

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.