Eyjakonur í undanúrslit eftir framlengdan leik gegn FH
Stelpurnar fagna marki í leiknum í dag. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í fótbolta tryggði sér sæti í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna með frábærum 3-2 sigri á FH, í framlengdum leik á Hásteinsvelli í dag. 

Eyjakonur byrjuðu leikinn afar vel og voru búnar ná forystunni eftir aðeins fjórar mínútur. Þar var að verki engin önnur en markadrottningin Allison Grace Lowrey þegar hún skoraði með skoti fyrir utan teig. FH konur sóttu og sóttu og náðu loks inn jöfnunarmarki undir lok fyrri hálfleiks með marki frá Ídu Marín Hermannsdóttur. Staðan 1-1 í hálfleik.

Eyjakonur komu af krafti inn í síðari hálfleikinn og komust í 2-1 á upphafs mínútunum. Sandra Voitane átti þá góða fyrirgjöf inn á teig FH og þar var Allison Patricia Clark ein og óvölduð og setti boltann örugglega í netið. FH konur leituðu að jöfnunarmarki en það kom ekki fyrr en á 80. mínútu leiksins þegar Berglind Freyja Hlynsdóttir setti boltann í netið af stuttu færi. Staðan 2-2 eftir venjulegan leiktíma og því þurfti að framlengja. 

ÍBV fengu vítaspyrnu snemma í framlengingunni þegar Sandra Voitane var toguð niður inn í teig. Fyrirliðinn, Avery Vanderven, steig á punktinn en Aldís Guðlaugsdóttir, markvörður FH, varði frá henni. Avery bætti þó upp vítaklúðrið því hún skoraði sigurmark leiksins tíu mínútum síðar þegar hún fékk sendingu frá Fridrikku Marie Clementsen inn á teiginn og kláraði frábærlega, stöngin inn. Lokatölur leiksins 3-2 og ÍBV er komið í undanúrslitin. 

Undanúrslitaleikirnir verða spilaðir laugardaginn 25. júlí og sunnudaginn 26. júlí.

8-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna:

FHL 1 – 7 Fram

ÍBV 3 – 2 FH

1-0 Allison Grace Lowrey (‘4 )

1-1 Ída Marín Hermannsdóttir (’42 )

2-1 Allison Patricia Clark (’49 )

2-2 Berglind Freyja Hlynsdóttir (’80 )

2-2 Avery Mae Vanderven (’94 , misnotað víti)

3-2 Avery Mae Vanderven (‘104 )

Fimmtudagur 18. júní

17:30 Þróttur R. – Víkingur R.

20:15 Grindavík/Njarðvík – Stjarnan

Nýjustu fréttir

Hvítu tjöldin – Undirbúningur hefst strax að hátíð lokinni
Húkkaraballið – myndir
Samveran í Dalnum stendur upp úr
Birgitta Haukdal spennt að mæta í dalinn í kvöld
Skiptitaskan mikilvæg þessa hátíðina
Vígslukvöld í Herjólfsdal — myndir og myndbönd
Bærinn leggur út 461 milljón á meðan beðið er svara
Fjölskyldufjör á sjó í blíðunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.