Eyjakonur mæta með bakið upp við vegg
Allir á völlinn – ÍBV þarf stuðninginn í þriðja leiknum
Hart tekist á í síðasta leik liðanna. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í handbolta sækir Val heim í þriðja leik úrslitaeinvígis liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í dag. Leikurinn fer fram í N1-höllinni á Hlíðarenda og hefst klukkan 17:00.

Staðan í einvíginu er 2–0 fyrir Val sem er því einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum. Eyjakonur þurfa á sigri að halda til að halda einvíginu á lífi og knýja fram fjórða leik. Valur hefur haft betur í fyrstu tveimur leikjum liðanna, en ÍBV-liðið hefur sýnt á tímabilinu að það getur brugðist sterkt við þegar mest reynir á.

Handknattleiksdeild ÍBV hefur hvatt stuðningsmenn til að fjölmenna til Reykjavíkur og styðja liðið í þessum mikilvæga leik. Boðið verður upp á fría ferð með Herjólfi klukkan 12:00 frá Vestmannaeyjum og heimferð er áætluð með ferð Herjólfs klukkan 20:45. Einnig verður frítt í rútu í boði Viking Tours.

„Nú er engin afsökun – við þurfum alla með okkur,“ segir í tilkynningu frá handknattleiksdeildinni sem leggur áherslu á að skapa hávaða, hjarta og alvöru Eyjastemningu í stúkunni. Leikurinn verður sýndur beint á Sjónvarpi Símans.

 

Nýjustu fréttir

Leggja til tvöfalt meiri makrílveiði á næsta ári
Góður afli en erfiðlega gekk að finna ýsu
Framkvæmdir víða um bæinn – myndband
Má skipta liði?
Síldarveiðar í fullum gangi hjá Vinnslustöðinni
Emil og félagar í U17 áfram í næstu umferð undankeppni EM 2027
Íris hvetur þingmenn til að skipuleggja ferðina út frá „löngu leiðinni“
Göngustígur kominn að Sjónarhorni Flakkarans
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.