Ágúst Halldórsson er Eyjamaðurinn í síðasta blaði Eyjafrétta. Vann sér það til frægðar að enda í Surtsey eftir að hafa lent í sjávarháska á kajak. Umhverfisstofnun umhverfðist og kærði og á Ágúst nú yfir sér allt að tveggja ára fangelsi. Hér er hann í einlægu spjalli:
Fullt nafn: Ágúst Halldórsson
Fjölskylda: Sonur Guðbjargar í bankanum og Dóra löggu. Giftur Guðbjörgu Erlu Ríkharðsdóttur og saman eigum við Emilíönu Erlu, Svein Jörund og Rebekku.
Mottó: Betra er að biðjast afsökunar en um leyfi.
Síðasta hámhorfið: Færeysku þættirnir TROM sem gerast í Thorshavn. Ég benti á tíu sekúndna fresti á sjónvarpið og kallaði til Guðbjargar: “ÉG HEF VERIÐ ÞARNA!!!”. Mæli með.
Uppáhalds hlaðvarp? Myrka Ísland, Gnarristinn, Skoðanabræður, Chess After Dark, Bókabræður, Fílalag og auðvitað Tvíhöfði.
Aðaláhugamál: Hef átt þau mörg áhugamálin í gegnum tíðina en topp fjögur núna eru: Lyftingar, lestur, kayak og fjallarafhjól.
Eitthvað sem þú gerir á hverjum degi sem þú gætir ekki verið án: Að vera með hljóðeinangrandi/noise canceling heyrnatól eða airpods. Róar mig af einhverjum skringilegum ástæðum. Þarf ekki einu sinni að vera að spila eða hlusta á eitthvað.
Venjulegur dagur hjá þér? Veit það ekki. Get setið með kaffibolla í sólhúsinu klukkan níu, vitandi ekkert hvað ég ætlaði að gera og klukkutíma síðar búinn að róa út í einhverja úteyju eða byrjaður að skrifa uppkast að bók. Og allt þar á milli.
Hvað óttast þú mest: Mig.
Hvaða tónlist kemur þér í gott skap: Allt sem kemur frá Bretlandi.
Hvað er velgengni fyrir þér: Að eiga hamingjusöm börn.
Fyrstur manna á kajak á Surtsey, hvernig er tilfinningin? Alveg frábær. Og ekki nóg það heldur hefur enginn farið út í Surtsey á eins umhverfisvænan máta í heiminum. Ég var ekki einu sinni í skóm og það fór ekki dropi af eldsneyti í ferðina.
Hvað kom í hugann þegar straumurinn skall á og plön breyttust? Eins og við sjómenn þekkjum, þá er sjórinn óútreiknanlegur og verður oft að hugsa í lausnum. Sem betur fer var faðmur Surtseyjar opinn.
Gætir þú lýst Surtsey í einni setningu? Surtsey er of dulin og falleg og þess vegna bagalegt að bannað sé að fara þangað nema með vinaleyfi.
Ertu ósáttur við viðbrögð umhverfisstofnunar? Nei nei, þetta er bara fólk að vinna vinnuna sína. Það vita það allir í Vestmannaeyjum að það hafa farið fleiri hundruð manns út í Surtsey í leyfisleysi. Það var bara enginn eins vitlaus og ég að birta það á samfélagsmiðlum og þá sérstaklega að skrifa í gestabókina í kofanum.
Hefur þér borist kæra? Mér skilst það en ég er núna staddur á Þórshöfn á Langanesi. Styttist í að ég fái símtalið frá eiginkonunni eða mynd í símann af bréfi.
Sérðu fyrir þér tveggja ára fangelsi? Ég og Tóti rafvirki ræddum þetta á Þjóðhátíðinni og við vorum sammála um að ég ætti margt líkt vini mínum Árna Johnsen og yrði flottur á Kvíabryggju. Tóti bauðst meira að segja til að skutla í mig grjóti þegar ég færi að búa til listaverk.
Spurning um góðan lögfræðing? Ég var að pæla í því fyrst en svo bauðst Stjáni á Emmunni frændi minn til að tala mínu máli. Hann er með munninn fyrir neðan nefið svo ég tók því fegins hendi.
Hvað stóð upp úr á Þjóðhátíð í ár? Það var nýja tjaldið hjá Óttari Steingríms, Andreu frænku, Betri Berg og Rebekku, Collosseum. Algjörlega til fyrirmyndar.
Hefur þú lært eitthvað af síðustu dögum? Já, aldrei taka myndir og eða myndbönd þegar maður gengur um á gráu svæði.





















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.