Eyjamenn einum sigri frá deildarmeistaratitlinum
Karlalið ÍBV í handbolta er í góðri stöðu eftir eins marks sigur á Stjörnunni í Olís-deild karla í kvöld, lokatölur 29:28.
Leikurinn í kvöld var jafn allan tímann en undir lokinn sigu Eyjamenn fram úr og náðu þriggja marka forystu. Stjörnumenn skoruðu hins vegar síðustu tvö mörk leiksins og minnkuðu muninn í 29:28 sem urðu lokatölur eins og fyrr segir.
Kári Kristján Kristjánsson var markahæstur í liði ÍBV með átta mörk. Aron Rafn Eðvarðsson varði 14 skot í markinu.
Eftir umferðina er ljóst að þrjú lið geta orðið deildarmeistarar, þ.e. ÍBV, Selfoss og FH en öll eru þau með 32 stig. Ef ÍBV sigrar Fram trygg­ir liðið sér deild­ar­meist­ara­titil­inn sama hvernig fer í hinum leikjun þar sem ÍBV stendur betur að vígi í inn­byrðisviður­eign­um þess­ara þriggja liða.
Eins og greint var frá fyrr í kvöld þá skrifaði Erlingur Richardsson undir þriggja ára samning við ÍBV sem tekur gildi í sumar.
– Myndir

Nýjustu fréttir

Gengu yfir Fimmvörðuháls í blíðskaparveðri
Kynntu ráðherra sérstöðu íslensks saltfisks í Portúgal
Stytting Hörgaeyrargarðs færist nær
Jafntefli hjá Heimi og Írum gegn Ísrael
Fimm ferðir til Landeyjahafnar á mánudag – dýpkun að hefjast
Erlingur stýrði Minden til sigurs í sínum fyrsta leik
Lærdómur liðinnar viku
Herjólfur siglir eina ferð til Landeyjahafnar síðdegis
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.