Eyjamenn fjölmenntu á samgöngufund Vegagerðarinnar
Á fimmta hundrað manns mættu í Höllina til að ræða stöðu hafnarinnar og framtíðarsýn Vegagerðarinnar
Höllin var þétt setin í gær enda um eitt mikilvægasta mál Vestmannaeyja til umfjöllunar. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Vegagerðin og Vestmannaeyjabær stóðu fyrir opnum íbúafundi í Höllinni í gær þar sem fjallað var um stöðu Landeyjahafnar, þær áskoranir sem upp komu í vetur og árangur dýpkunarframkvæmda undanfarin ár.

Á fundinum voru einnig kynntar frumniðurstöður úr rannsóknarverkefni danskra sérfræðinga hjá DHI A/S sem unnið hafa að greiningu á sandburði og mögulegum úrbótum til að auka nýtingu hafnarinnar.

Meðal frummælenda voru Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra, Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar, Fannar Gíslason forstöðumaður hafnadeildar Vegagerðarinnar og Kjartan Elíasson sérfræðingur á hafnadeildinni.

Hér að neðan má sjá upptöku af fundinum í heild sinni fyrir þá sem ekki áttu heimangengt eða vilja kynna sér umræðurnar nánar. Ljósmyndari Eyjafrétta var á staðnum og má sjá myndasyrpu hans fyrir neðan upptökuna.

Play Video

Nýjustu fréttir

Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.