Eyjamenn hönnuðu flösku sem hleður gemsa
Í dag voru veitt verðlaun í Snilldarlausnum Marels 2014. Verkefni keppninnar var að auka virði flösku og þurftu þátttakendur að finna út hvernig mætti gera það. Fjórir Eyjapeyjar, þeir Arnar Sveinn Guðmundsson, Aron Máni Símonarson, Baldvin Búi Wernerson, �?órður �?rn Stefánsson, tóku þátt og útbjuggu V-Hleðslu þar sem flösku er umbreytt í hleðslutæki sem styrkir vöðva líkamans en um leið hleður hún raftæki í gegnum USB. Snúru er stungið í flöskuna og fer þá fram umbreyting hreyfiorku í raforku. Myndband sem fylgir fréttinni útskýrir betur við hvað er átt en Eyjahópurinn fékk verðlaunin Líklegast til framleiðslu og einnig Vinsælustu lausnina. Nemendurnir hafa sótt tíma í Fab 203 í FÍV í Fab Lab smiðjuna í Eyjum og þar fóru þeir ásamt öðrum nemendum í gegnum vöruþróunarferli frá hugmynd til afurðar og er flöskuhleðslutækið ein af afurðum þess.
Strákarnir eru allir nemendur í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum en þeir fengu í verðlaun 50.000 kr. í reiðufé ásamt gjafakörfu frá �?lgerðinni.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.