Eyjamenn komnir yfir í úrslitaeinvíginu
ÍBV tók á móti FH í dag í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvígi Íslandsmótsins. Eyjamenn sigruðu leikinn með sex marka mun og er því komnir 1:0 yfir í einvíginu en þrjá sigra þarf til að tryggja Íslandsmeistaratitilinn.
Leikurinn var allan tímann jafn og voru það gestirnir frá Hafnafirði sem leiddu með einu marki í hálfleik, staðan 11:12.
Liðsmenn ÍBV mættu öflugir til leiks í síðari hálfleiknum og voru búnir að taka forystuna áður en langt var um liðið. FH-ingarnir voru þá aldrei langt undan og var það ekki fyrr en undir lok leiks sem það fór meira að skilja milli liðanna.
Róbert Aron Hostert var markahæstur í liði ÍBV með sjö mörk. Aron Rafn Eðvarðsson átti góðan dag í markinu og varði 20 skot, tvöfalt fleiri en Ágúst Elí Björgvinsson í marki FH.
Ann­ar leik­ur liðanna í einvíginu fer fram í Kaplakrika á þriðju­dag­inn kl. 19:30.
Myndir – �?skar Pétur Friðriksson

Nýjustu fréttir

Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.