ÍBV komst í kvöld upp í fjórða sæti Olís deildar karla er liðið lagði Hauka í Eyjum. Gestirnir byrjuðu leikinn betur og leiddu stóran hluta fyrri hálfleiks. Staðan í leikhléi var 15-14 Haukum í vil.
Í síðari hálfleik komu Eyjamenn ákveðnari til leiks og munaði þar mestu um Dag Arnarsson sem kom sterkur inn. Svo fór að hann var annar tveggja markahæstu leikmanna liðsins, með sex mörk líkt og Andri Erlingsson.
Leiknum lauk með þriggja marka sigri ÍBV 32-29. Auk fyrrnefndra markaskorara skoraði Kári Kristján Kristjánsson fimm mörk og Nökkvi Snær Óðinsson gerði fjögur mörk. Petar Jokanovic var góður í markinu en hann varði 17 skot.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst