Eyjamenn og Skagfirðingar sameinast gegn fjármálaráðherra
Á þessari mynd Sigurgeirs Jónassonar sjást Heimaey og nokkrar af þeim úteyjum sem ráðherrann ásælist.

„Bæði Eyjamenn og Skagfirðingar eru staðfastir í þeirri ætlan sinni að halda sínum hlut gagnvart kröfum fjármála- og efnahagsráðherra um að úteyjar Vestmannaeyja sem og Drangey á Skagafirði verði úrskurðaðar þjóðlendur. Telur hann rétt að óbyggðanefnd skeri þar úr,“ segir í Morgunblaðinu í dag og á mbl.is.

Gott til að vita að Eyjamenn eru ekki einir í sigtinu hjá fjármálaráðherra sem með þessu heldur áfram endaleysunni sem forverar hans í síðustu ríkisstjórn hófu á síðasta ári. Samstaða þvert yfir landið ætti að styrkja stöðu okkar Eyjamanna ekki síður en Skagfirðinga sem eru baráttumenn eins og saga um aldir sýnir.

„Hyggst ríkið því halda áfram málarekstri fyrir óbyggðanefnd hvað þessar eyjar varðar, enda þótt fallið hafi verið frá kröfum í langflestar eyjar og sker fyrir Íslandsströndum. Niðurstaða þar um var kunngjörð fyrir skemmstu,“ segir á mbl.is og haft eftir Írisi bæjarstjóra í Vestmannaeyjum að Eyjamenn ætli ekki að láta fjármála- og efnahagsráðuneytið, eða einhvern á þess vegum, ákveða að úteyjar Vestmannaeyja verði þjóðlendur.

„Það munum við aldrei sætta okkur við. Úteyjarnar verða okkar eign, hér eftir sem hingað til,“ segir Íris.

„Mér finnst það vera með ólíkindum að þeir skuli ásælast Drangey,“ segir Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri í Skagafirði. Drangey sé eyja sem hafi verið í eigu sveitarfélagsins og forvera þess í langan tíma. Bæði Íris og Sigfús Ingi segja eignarhald sveitarfélaganna á umræddum eyjum hafið yfir vafa, enda liggi fyrir skjöl sem staðfesti það.

Morgunblaðið og mbl.is.

Nýjustu fréttir

Afmælishátíð Landhelgisgæslunnar í Eyjum frestað
Litla-Hraun jafnað við jörðu
Segja mismunun felast í reglum um vinnuskólann
Leikhópurinn Lotta sýnir Litaland 
Terra fær ekki samþykktar breytingar á gjaldskrá
ÍBV og FH skiptu með sér stigunum
Stærstu viðskiptafréttir í sögu Vestmannaeyja
Pétur Bjarna, Eyjamaður og sjávarútvegsfræðingur

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.