Eyjamenn sækja ÍR heim í bikarnum í kvöld
Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Karlalið ÍBV í handknattleik mætir ÍR á útivelli í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins í kvöld, föstudaginn 9. október. Leikurinn fer fram í Skógarseli í Reykjavík og hefst klukkan 18:45.

ÍBV leikur í Olísdeildinni en ÍR í Grill 66 deildinni. ÍR-ingar hafa farið vel af stað í deildarkeppninni í haust og unnið fyrstu fjóra leiki sína.

Þótt liðin leiki í sitt hvorri deildinni er ljóst að Eyjamenn þurfa að hafa fyrir hlutunum ætli þeir sér áfram í bikarkeppninni. Þar gildir einfalt lögmál, sigurvegarinn heldur áfram en tapliðið er úr leik.

Sigur í kvöld myndi tryggja ÍBV sæti í átta liða úrslitum Powerade-bikarsins. ÍR – ÍBV hefst klukkan 18:45 í Skógarseli í Reykjavík.

Nýjustu fréttir

Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.