Eyjamenn senda höfuðborgarbúum drykkjarföng
Í ljósi frétta af fjölgun jarðvegsgerla í kalda vatni höfuðborgarsvæðissins hefur brugghúsið The Brothers Brewery ákveðið að bregðast við og senda drykkjarföng á höfuðborgarsvæðið. Telja eigendur The Brothers Brewery að með þessu séu þeir að létta undir með höfuðborgarbúum enda með öllu ótækt að sjóða þurfi drykkjarvöru þeirra á meðan þetta ástand gengur yfir.
Á bóndadaginn sem er næstkomandi föstudag hefst sala á þorrabjórum í Vínbúðunum og er 23.01.73 fyrsti bjór The Brothers Brewery sem kemur í sölu í Vínbúðunum. The Brothers Brewery hefur haft framleiðsluleyfi í um tvö ár og hingað til eingöngu þjónað eyjamönnum og örfáum veitingastöðum á höfuðborgarsvæðinu hingað til. The Brothers Brewery vann á sínu fyrsta starfsári til verðlauna með bjór ársins á bjórhátíðinni á Hólum með sjómannabjórinn Togarann og á síðasti ári fékk brugghúsið 2.verðlaun fyrir tunnuþroskaðann Surtsey á sömu hátíð.
Nafnið á bjórnum kemur til af upphafi eldgossins á Heimey 23.janúar 1973 en í næstu viku eru 45 ár liðin frá upphafi eldgossins. Með þessu nafni vilja eigendur The Brothers Brewery tileinka bjórnum öllum þeim eyjamönnum sem fluttu til eyja aftur eftir gos og byggðu upp það samfélag sem Vestmannaeyjar er í dag. 23.01.73 er dökkur bjór með skírskotun í öskuna sem fyllti bæinn á meðan á eldgosinu stóð.
Höfuðborgarbúar geta verslað 23.01.73 í Vínbúðunum í Skútuvogi, Heiðrúnu, Kringlunni, Skeifunni, Dalvegi, Hafnarfirði og einnig eiga Akureyringar og Vestmannaeyingar möguleika að versla bjórinn í sínum Vínbúðunum.

Nýjustu fréttir

„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Lokadagur TM-mótsins: Gleði, keppni og ógleymanlegar minningar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.