Eyjamenn töpuðu á Hlíðarenda
Andri Erlingsson í leik gegn KA fyrr í vetur. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Karlalið ÍBV í handbolta tapaði gegn Val í lokaleik 11. umferðar Olís deildar karla á Hlíðarenda í dag. Jafnræði var með liðunum á upphafsmínútum leiksins en um miðbik fyrri hálfleiks náði Valur þriggja marka forystu. Valur hélt áfram að bæta í og leiddi með sjö mörkum í hálfleik, 17-10.

Valur hélt sama dampi í síðari hálfleik og náðu Eyjamenn aldrei að setja neina pressu á Valsmenn. Þegar stundarfjórðungur var eftir var munurinn níu mörk. Valsmenn náðu mest 11 marka forystu og unnu að lokum öruggan sigur. Lokatölur leiksins 34-26.

Andri Erlingsson var markahæstur í liði Eyjamanna með fimm mörk en Arnór Snær Óskarsson, leikmaður Vals, skoraði flest mörk í leiknum, átta talsins. Eftir leikinn sitja Eyjamenn í 6. sæti með 11 stig á meðan  Valsmenn eru í 2. sæti með 16 stig.

Mörk ÍBV: Andri erlingsson 5 mörk, Ívar Bessi Viðarsson 4, Daníel Þór Ingason 3, Egill Oddgeir Stefánsson 3, Sigtryggur Daði Rúnarsson 3, Hinrik Hugi Heiðarsson 3, Dagur Arnarsson 2, Anton Frans Sigurðsson 2, Nökkvi Snær Óðinsson 1.

Næsti leikur ÍBV er útileikur gegn HK, föstudaginn 28. nóvember, kl. 18:30.

Nýjustu fréttir

„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Lokadagur TM-mótsins: Gleði, keppni og ógleymanlegar minningar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.