Eyjamenn máttu þola tap í fjórða leik sínum í röð er þeir tóku á móti Fram í 13. umferð Bestu deildar karla í kvöld. Leikurinn fór fram í Úlfarsárdal og eftir mjög rólegar upphafsmínútur voru það heimamenn sem tóku forystuna á 20. mínútu leiksins þegar Freyr Sigurðsson náði að koma boltanum í markið eftir klaufagang í vörn Eyjamanna. Aðeins átta mínútum síðar bætti Jakob Byström við öðru marki fyrir Fram eftir góðan undirbúning Vuk Oskar Dimitrijevic.
Milan Tomic komst næst því að minnka muninn fyrir ÍBV í seinni hálfleik þegar bjargað var á línu frá honum og svo átti Sverrir Páll Hjaltested fínan skalla en hann fór rétt framhjá marki Framara. Ekki voru fleiri mörk skoruð og 2-0 sigur Framara staðreynd.
Eftir leikinn er ÍBV í tíunda sæti með 14. stig á meðan Framarar komu sér upp í 5. sæti með 19. Stig.
Eyjamenn taka á móti Víkingum í 14. umferð Bestu deildarinnar laugardaginn 5. júlí kl. 16:00. Ekki er enn ljóst hvort leikurinn fari fram á Þórsvelli eða á nýjum Hásteinsvelli.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.