Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Úr leik ÍBV og KR á Hásteinsvelli fyrr í sumar. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

ÍBV og KR áttust við í 14. umferð Bestu deildar karla á Meistarvöllum í kvöld þar sem KR fór með 5-2 sigur af hólmi. 

Eyjamenn byrjuðu leikinn nokkuð vel en Omar Sowe kom þeim yfir á fjórðu mínútu leiksins með góðu skoti fyrir utan teig. KR ingar svöruðu með tveimur mörkum. Aron sigurðarson jafnaði fyrir KR þegar hann skoraði af vítapunktinum eftir 25 mínútna leik og Arnór Yngvi Traustason kom þeim yfir eftir laglegt samspil. Staðan 2-1 í hálfleik.

KR gerðu nokkurn veginn út um leikinn snemma í síðari hálfleik er þeir skoruðu þrjú mörk á tíu mínútum. Aron Sigurðarson bætti við sínu öðru marki í leiknum og þriðja marki KR á 58. mínútu þegar hann skoraði beint úr aukaspyrnu. Orri Hrafn Kjartansson kom heimamönnum í 4-1 tveimur mínútum síðar með föstu skoti úr teignum og Eiður Gauti Sæbjörnsson setti fimmta mark KR á 68. mínútu. Vicente Valor klóraði í bakkann fyrir Eyjamenn þegar fimmtán mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma með marki af vítapunktinum. Lokatölur leiksins 5-2. 

ÍBV situr áttunda sæti með 15 stig á meðan KR er í öðru sæti með 32 stig.

Úrslit kvöldsins í Bestu deild karla:

KR 5 – 2 ÍBV

Fram 6 – 1 Þór

KA 3 – 2 ÍA

20:05 FH – Valur

Mánudagur

19:15 Breiðablik – Keflavík

Nýjustu fréttir

Styður lengri útivistartíma 10–12 ára barna
Þyrlupallurinn í Surtsey stækkaður
ÍBV tapaði gegn Þrótti R. á Hásteinsvelli
Stefnt að styttingu Hörgaeyrargarðs í lok september
Livey tekur við streymi Olísdeildarinnar
Kristín skipuð í nýtt embætti sýslumanns
Opinn fundur um þjóðaratkvæðagreiðsluna
ESB-aðild gæti fært störf og verðmæti úr landi að mati SFS
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.