Eyjatónleikar – Landeyjahöfn alla helgina
Eyjatonleikar Ahorfendur DSC 2357
Í Hörpu á Eyjatónleikum. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

„Það lítur vel út með Landeyjahöfn á morgun, laugardaginn og á sunnudaginn þegar heim skal haldið þannig að ég er bjartsýnn á góða aðsókn,“ sagði Bjarni Ólafur Guðmundsson, tónleikahaldari um tónleikana, Töfrar í Herjólfsdal sem verða í Eldborgarsal Hörpu á laugardagskvöldið, 25. janúar.

„Þetta verða 14. tónleikarnir í röð en hvort þeir verða þeir síðustu veit ég ekki en við komum til með að hvíla okkur allavega í tvö ár. Eins og alltaf skörtum við hópi okkar besta listafólks og þar koma Vestmannaeyingar sterkir inn. Við vitum að kröfurnar eru miklar og munum standa undir þeim eins og alltaf. Það er að færast líf í miðasölu en enn er hægt að fá miða á góðum stað. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest á laugardagskvöldið,“ sagði Bjarni Ólafur að lokum.

Nýjustu fréttir

Sunnudagsmorgunn með alþjóðlegum blæ
Um 8000 farþegar með tíu skemmtiferðaskipum
Tvö skemmtiferðaskip í blíðunni í Vestmannaeyjum
Fyrstu spár lofa góðu fyrir Þjóðhátíð
Skiptu 3.000 tonnum af makríl fyrir 1.400 tonn af þorski
Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax
Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.