Eyjatónleikum frestað – syngjum inn sumarið!
Frá Eyjatónleikum í Hörpu 2018. Mynd: Óskar Pétur Friðriksson

Í ljósi stöðunnar í samfélaginu og nýrra sóttvarnaráðstafana, höfum við ákveðið að fresta Eyjatónleikunum sem áttu að vera 22.janúar næstkomandi. Ný dagsetning er 21.apríl, sem er sumardagurinn fyrsti. Við munum því fagna komandi sumri saman eins og okkur einum er lagið. Vegna þessa hefur Jóhanna Guðrún dregið sig út úr hópnum af persónulegum ástæðum og í hennar stað kemur engin önnur en Stefanía Svavarsdóttir, sem slegið hefur tvisvar í gegn á Eyjatónleikunum í Hörpu. Bjóðum við Stefaníu velkomna í hópinn. Allir þeir sem eiga miða á tónleikana þann 22.janúar þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur. Þeir geta haldið sínum miðum og sínum sætum, en ef viðkomandi eiga ekki möguleika á að nýta miðana þann 21.apríl, er um að gera að hafa samband við miðasölu Hörpu og verða þeir þá að sjálfsögðu endurgreiddir.

Hlökkum til að sjá ykkur sem allra flest, þegar við fögnum sumri saman í Eldborgarsal Hörpu fimmtudaginn 21.apríl næstkomandi.

Nýjustu fréttir

Sjómannadags fjör í Höllinni: myndasyrpa
Myndir frá sjómannafjöri á bryggjunni
Skötuveisla sem stendur undir nafni
Íþróttafélagið Ægir fór í keppnisferð til Danmerkur
Bræðurnir Jón Atli og Árni rifja upp árin á Ísleifi
Léttir hlaut nafn sitt við hátíðlega athöfn – myndir
Svipmyndir frá sjómannagleði við sjávarsíðuna
Stjána á Emmunni þakkað fyrir ómetanlegt starf
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.