Það gæti reynst erfitt að finna nægilega mikið af stóru grjóti á Heimaey í brimvarnargarð við Eiðið. Þetta kemur fram í nýrri jarðfræðiskýrslu Völubergs um rannsóknargröft á Haugasvæðinu. Gróflega er áætlað að um 1,8 milljónir rúmmetra af möl og grjóti þurfi í þá útfærslu stórskipahafnar sem Vestmannaeyjabær hefur til skoðunar.
Útfærslan felur í sér brimvarnargarð, tvo hafnarkanta og landfyllingu á um fimm hektara svæði. Samkvæmt skýrslunni gæti náman á Haugasvæðinu gefið af sér töluvert grjót og mikið af góðu fyllingarefni. Búist er við töluverðu ölduálagi á brimvarnargarðinn og gæti reynst erfitt að finna nægilegt magn af grjóti af þeirri stærð sem þar þarf.
Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að meira geti fengist af steinum sem vega þrjú til tíu tonn úr óreglulegri og kargaríkari hlutum hraunsins en áður var talið. Að mati Völubergs gæti því verið hagkvæmt að vinna grjót á stærra svæði, þótt stærstu steinarnir yrðu þá hlutfallslega minni hluti af því grjóti sem fengist.
Boranir benda sterklega til þess að þétt berg sé ráðandi á þeim hluta Haugasvæðisins sem talinn er vænlegastur til grjótvinnslu. Enn er þó töluverð óvissa um hversu mikið grjót fengist í hverjum stærðarflokki.
Sviðsstjóri og hafnarstjóri fóru yfir skýrsluna á fundi framkvæmda- og hafnarráðs Vestmannaeyja 11. nóvember. Í fundargerð kemur fram að ráðið vonist til þess að niðurstöðurnar leggi grunn að áframhaldandi vinnslu grjótnámunnar. Ráðið hyggst fylgja málinu eftir og telur að aðgangur að hentugu grjóti geti haft veruleg áhrif á möguleika til að ráðast í uppbyggingu hafnarinnar.
