Margrét Mjöll Ingadóttir og Hekla Katrín Benónýsdóttir 7 að verða 8 ára gáfu heimilismönnum á Hraunbúðum 7.639 kr sem þær höfðu safnað á tombólu. Tekin var sameiginleg ákvörðun með þeim og heimilisfólki að kaupa þjóðhátíðarskraut á sólpallinn sem hægt væri að nota í árlegum þjóðhátíðarpartýum á staðnum. Þær stöllur vildu endilega að krakkar væru líka í þessu partýi og var þeim því að sjálfsögðu boðið að mæta en þær komast því miður ekki.
Katla Margrét Guðgeirsdóttir 9 ára og Védís Eva Bjartmarsdóttir 8 ára gáfu fyrr í sumar Hraunbúðum 6.181 kr eftir að hafa haldið tombólu sem ákveðið var að færi líka til kaupa á þjóðhátíðarskrauti. Þeim er að sjálfsögðu líka boðið í partýið.
Við á Hraunbúðum þökkum þessum skemmtilegu stúlkum kærlega fyrir að hugsa svona fallega til eldri borgaranna okkar og höfum við nýtt peninginn í að kaupa skraut á pallinn sem sett var upp í dag fyrir okkar árlega þjóðhátíðarpartý.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.