Fallið frá kröfum um eyjar og sker við Reykjavík
Smáeyjar við sólarlag. Þær eru í sigti ríkisins. Mynd Addi Í London.

Vekur vonir um sátt við Vestmanneyinga

„Með bréfi íslenska ríkisins til óbyggðanefndar, dagsettu 12. september 2025, féll ríkið frá öllum kröfum til eyja og skerja sem tilheyra Reykjavíkurborg,“ segir í frétt á mbl.is.
Fréttin vekur vonir um að hið opinbera gæti nú ákveðið að draga til baka sambærilegar kröfur gagnvart Vestmanneyingum, þar sem ríkið hefur um árabil reynt að sölsa undir sig allar úteyjar Vestmannaeyja og hluta af Heimaey.

„Af þessari breyttu afstöðu íslenska ríkisins er ljóst að ágreiningi ríkisins og Reykjavíkurborgar vegna þar tilgreindra eyja og skerja er nú lokið fyrir óbyggðanefnd,“ segir jafnframt á mbl.is, þar sem vitnað er í minnisblað Ebbu Schram borgarlögmanns, sem kynnt var á síðasta fundi borgarráðs.

Árið 2023 lagði ríkið fram víðtækar kröfur fyrir hönd óbyggðanefndar um eignarhald á flestum eyjum og skerjum við Ísland, bæði á sjó og landi. Síðan hefur verið dregið talsvert í land, en eftir standa þó kröfur um eyjar í Skagafirði og Vestmannaeyjum.

Líta má á þetta sem gullið tækifæri fyrir núverandi fjármálaráðherra til að ganga endanlega frá þessum málum og hreinsa upp eftir forvera sína sem sýndu litla sem enga miskunn í deilu við Eyjamenn.

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.