Féll útbyrðis af léttabát Herjólfs

Einn maður úr þriggja manna áhöfn léttabáts Herjólfs féll útbyrðis þegar eldur varð laus í vélarrúmi bátsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu. Herjólfur var þá á leið úr Landeyjahöfn til Vestmannaeyja og var ferðin notuð til að æfa notkun léttabátsins.

Björgunarskipið Þór var kallað út á hæsta forgangi og hélt úr höfn í Vestmannaeyjum kl 18:35, til móts við Herjólf og léttabátinn.

Þegar Þór kom á staðinn, nokkrum mínútum síðar, höfðu þeir tveir sem um borð í léttabátnum voru, náð félaga sínum sem féll útbyrðis aftur um borð og áhöfninni hafði tekist að slökkva eldinn með slökkvikerfi í vélarrúmi hans. Engin hætta var lengur á ferðum.

Áhöfn léttabátsins var tekin um borð í Bs Þór og áhöfn Þórs kom toglínu í léttabátinn. Þór hélt svo með léttabátinn í togi til hafnar í Vestmannaeyjum.

Þeir þrír sem voru um borð í léttabátnum voru fluttir með sjúkrabíl til skoðunar á sjúkrahúsi Vestmannaeyja, að eigin ósk.

Gott veður og sjólag var á staðnum og gengu aðgerðir vel. Þór var lagstur að bryggju og verkefni lokið um 45 mínútum eftir að lagt var úr höfn.

Meðfylgjandi eru ljósmyndir teknar um borð í Bs Þór í kvöld.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.