Ferjan verður mögulega lengd og seinkar því afhending
Í dag sendi Eyjafréttir fulltrúum Vegagerðarinnar og framkvæmdastjóra Sæferða spurningar varðandi þær sögusagnir að ný ferja sem verið er að smíða væri of þung og yrði því lengd, Vegagerðin gaf í kjölfarið frá sér þessa yfirlýsingu.
�??Skipasmíðastöðin CRIST S.A. í Póllandi hefur lagt til að lengja nýju Vestmannaeyjaferjuna um 1,8 metra og breyta stefninu. Með því móti tekst að halda djúpristunni innan þeirra marka sem að var stefnt.
Við þessar breytingar verður aðstaða fyrir farþega betri og ferjan getur flutt fleiri fólksbíla að jafnaði. �?essar breytingar eru verkkaupa að kostnaðarlausu en verða þess valdandi að afhending dregst eitthvað. �?essi tillaga skipasmíðstöðvarinnar er enn til skoðunar hjá samgönguráðuneytinu og Vegagerðinni. Ákvörðun verður tekin fljótlega.
�?að eru gerðar afar stífar kröfur um djúpristu nýju Vestmannaeyjaferjunnar til að auðvelda siglingar í Landeyjahöfn. �?að þýðir að það er fylgst vel með þyngd ferjunnar og stöðugleikanum og gripið til ráðstafana ef frávik verður. Að mati skipasmíðastöðvarinnar verður ferjan að óbreyttu of þung og því leggur hún til að lengja nýju ferjuna lítillega og breyta stefninu.
Samkvæmt útboðið á að skila ferjunni tilbúinni í júlí árið 2018 en komi til þessa gæti það orðið síðsumars í staðinn.�??

Nýjustu fréttir

Eyjakonur áfram á sigurbraut – Unnu Val á Hásteinsvelli
Tyrkjaránsganga Sögusetursins 1627
Einn túr eftir fyrir sumarstopp
NovaFest á Vöruhúsinu á Þjóðhátíð
ÍBV tekur á móti Val í kvöld
Rafmótorinn tilbúinn – Herjólfur úr áætlun í allt að fjóra sólarhringa
Óboðnir gestir undir yfirborðinu
Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.