Fíkniefni fundust við þrif á veitingastað
Eitt fíkniefnamál kom upp í vikunni hjá lögreglunni þegar við þrif á einum af veitingstöðum bæjarins um helgina fundust ætluð fíkniefni sem talið að sé um 10 gr. af amfetamíni að talið er. Ekki er vitað hver er eigandi efnanna.
Einn þjófnaður var tilkynntur lögreglu í vikunni sem leið en um var að ræða þjófnað á farsíma. Síminn fannst hins vegar fljótlega í fórum manns sem kvaðst hafa fundið símann og afhenti hann lögreglu símann.
Eitt umferðaróhapp var tilkynnt í vikunni en óhappið varð við fermingu Herjólfs í �?orlákshöfn, en þarna hafði ökumaður bifreiðar ekið aftan á aðra bifreið án þess þó að slys hafi orðið á fólki. Ekki varð neitt teljanlegt tjón á bifreiðunum.
Fjórar kærur liggja fyrir vegna brota á umferðarlögum eftir vikuna, en í öllum tilvikum var um ólöglega lagningu ökutækja að ræða.

Nýjustu fréttir

Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.