Fimm lekar fundnir
5. mars, 2024
skolavegur_gatnag
Einn af þeim lekum sem gera þarf við er á stofnæð á gatnamótum Skólavegar og Vestmannabrautar. Þar sem um stofnæð er að ræða verður viðgerðin töluvert umfangsmikil og gera má ráð fyrir að hún taki nokkra daga. Eyjar.net/Tryggvi Már

Í upphafi árs tilkynntu HS Veitur að hafin væri skipulögð lekaleit í Vestmannaeyjum. Biðlað var til bæjarbúa að láta fagaðila yfirfara kerfi sín og að lagfæra mögulegar bilanir og rangtengingar.

Einnig kom fram í tilkynningunni að talsvert af vatni færi út úr kerfinu, vegna leka og rangtenginga, sem olli því að stöðugt þurfti að bæta á það með vatni úr neðansjávarvatnslögninni, sem eins og kunnugt er, er mikið löskuð.

Yfir 200 rúmmetrar töpuðust á sólarhring

Samkvæmt upplýsingum frá HS Veitum voru að tapast – fyrir átaksverkefnið – rúmir 200m³ á sólarhring af vatni úr lokaða hitaveitukerfinu í Vestmannaeyjum.

Sigrún Inga Ævarsdóttir, samskipta og markaðsstjóri HS Veitna segir í samtali við Eyjar.net aðspurð um hvort leitin hafi borið árangur að lekaleit í dreifikerfi hitaveitunnar í Vestmannaeyjum hafi gengið vel og er búið að staðsetja fimm leka víðsvegar um bæinn.

Stofnæð löskuð á gatnamótum Skólavegar og Vestmannabrautar

„Viðgerð er lokið á tveim stöðum og stefnt að áframhaldandi viðgerðum á næstu vikum. Mikilvægt er að undirbúa þessi verk vel og að veðurfar sé ákjósanlegt á meðan á viðgerðum stendur og lokað er fyrir heitt vatn hjá íbúum og fyrirtækjum. Einn af þeim lekum sem gera þarf við er á stofnæð á gatnamótum Skólavegar og Vestmannabrautar. Þar sem um stofnæð er að ræða verður viðgerðin töluvert umfangsmikil og gera má ráð fyrir að hún taki nokkra daga. Íbúar munu því verða varir við framkvæmdina þar sem loka þarf fyrir heitt vatn á nokkuð stóru svæði í miðbænum á meðan á henni stendur. Með góðum undirbúningi og skipulagi verður leitast við að lokun fyrir heita vatnið vari í sem skemmstan tíma þótt framkvæmdin í heild sinni feli í sér mikið rask og taki töluverðan tíma.“ segir hún.

Tímafrekt verkefni

Þá segir Sigrún Inga að starfsfólk HS Veitna í Vestmannaeyjum vinni að leikaleit nær alla daga en gera má ráð fyrir að átaksverkefnið muni standa yfir í þó nokkurn tíma, jafnvel nokkra mánuði, þar sem um tímafrekt verkefni er að ræða og áhersla lögð á að íbúar verði fyrir sem minnstum óþægindum vegna þessa.

„HS Veitur munu halda áfram að leggja áherslu á lekaleit í Vestmanneyjum og bregðast við þeim bilunum sem finnast í tengslum við það átaksverkefni.“

https://eyjar.net/skipulogd-lekaleit-hafin/

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst