„Fínasti karfi”
20221025_084958
Vestmannaey VE í heimahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogarinn Vestmannaey VE landaði fullfermi af karfa í Eyjum í gærmorgun. Á vefsíðu Síldarvinnslunnar er rætt við Birgi Þór Sverrisson skipstjóra í seinni partinn í gær og forvitnast um túrinn.

„Þetta var fullfermi af karfa. Það voru nokkrir ufsar með í aflanum. Við fengum karfann á Reykjanesgrunni og í Skerjadýpinu og það gekk vel að veiða. Við vorum að veiðum einungis í einn og hálfan sólarhring. Þetta er fínasti karfi og hann fer beint í útflutning. Veðrið var ekkert til að væla yfir en það var kaldi allan tímann. Við héldum til veiða strax að löndun lokinni og nú á að veiða ýsu, þorsk og ufsa. Við erum komnir á Höfðann og byrjaðir veiðar. Stefnt er að því að landa á miðvikudagskvöld og síðan er Þjóðhátíð á dagskrá. Við gerum ráð fyrir að halda á ný til veiða á mánudag að lokinni Þjóðhátíðinni,” segir Birgir Þór.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.