Finn kraftinn í samfélaginu

Guðrún Hafsteinsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

Það er alltaf gaman að koma til Eyja og finna þar kraftinn í samfélaginu. Síðasta laugardag heimsótti ég Vestmannaeyjar. Hvatinn að heimsókninni var boð á fund hjá Sjálfstæðisflokknum í Ásgarði. Mér finnst ekkert mikilvægara en að hitta fólk og fara yfir málin.

Undanfarna daga hef ég verið mikið á ferðinni um kjördæmið ásamt því að sinna störfum í þinginu. Ég gegni formennsku í Efnahags- og viðskiptanefnd og sit sömuleiðis í Velferðarnefnd. Í báðum þessum nefndum er af mörgu að taka.

Í efnahags- og viðskiptanefnd höfum við meðal annars afgreitt breytingar á lífeyrissjóðalögum, það er að leyfa lífeyrissjóðunum að fjárfesta meira í erlendum eignum sem og að nú fá þeir leyfi til að senda rafrænt upplýsingar til sjóðsfélaga.

Í velferðarnefnd er meðal annars verið að endurskoða sóttvarnarlög sem og lög um tóbaksvarnir. Það er mikið starf sem á sér stað í nefndum og sitja allir þingmenn í einhverri nefnd en þær eru samtals 8. Í næstu viku mun efnahags- og fjármálaráðherra leggja fram fjármálaáætlun fyrir árin 2024-2028. Það er ljóst að næstu misseri verða krefjandi og leggja þarf höfuðáherslu á að ná niður verðbólgu og stöðugleika í efnahagskerfið. Góðu fréttirnar eru aftur á móti þær að það er góður gangur í hagkerfinu. Merki um það er að nú er að ljúka góðri loðnuvertíð sem skilar sér í miklum skattekjum í ríkissjóð.

Vertíðin hefur gengið afskaplega vel, varla fallið niður dagur vegna veðurs. Um helgina fékk ég tækifæri til að skoða nýtt hrognahús Ísfélagsins sem var einmitt tekið í notkun fyrir þessa loðnuvertíð. Ég hef aldrei áður séð með eigin augum hrognavinnslu og þótti mér mjög fróðlegt að sjá vinnsluna. Í húsinu mátti sjá íslenskt hugvit og þekkingu og sem flest unnið í Eyjum.

Maður verður áþreifanlega var við mikilvægi þessarar vinnslu fyrir samfélagið í Eyjum sem og þjóðina alla.  Það má með sanni segja að Eyjamenn skili sínu í þjóðarbúið. Það er kraftur í Eyjum og gott að sækja sér þar orku sem nýtist til starfa inni á Alþingi.

Guðrún Hafsteinsdóttir

oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

Nýjustu fréttir

Innviðaráðherra og forstjóri Vegagerðarinnar heimsóttu borstæði Eyjaganga
Tólf ferðir á dag til og frá Eyjum frá 8. júní – uppfært
Högum okkur
Herjólfur frestar 8 ferða áætlun 
Karlakór Vestmannaeyja með vortónleika
Eyjagöng: Borað yfir 120 metra á rúmri viku
Nei, það er ekki glæpur
Nethamar hætt starfsemi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.