Fiskveiðiárið 2019/2020 verður seint talið mikið aflaár í íslenskum sjávarútvegi. Heildarafli íslenska fiskiskipaflotans nam rúmlega einni milljón og tíu þúsund tonnum. Mestu munar þar um aflabrestinn í loðnu annað árið í röð.
Fiskistofa hefur tekið saman margvíslegar yfirlitsupplýsingar um fiskveiðiárið. Heildaraflinn á fiskveiðiárinu 2019/2020 var rúmlega 1.011 þúsund tonn og dróst saman frá fyrra ári um 7,3%.
Botnfiskaflinn nam 483 þúsund tonnum og dróst saman um 30 þúsund tonn. Þorskaflinn jókst um 3 þúsund tonn en ýsuaflinn dróst saman um 11 þúsund tonn, þá dróst afli saman í ufsa um 17 þúsund tonn og rúmlega 3 þúsund tonn í gullkarfa.
Uppsjávarafli íslenska flotans dróst saman um 48 þúsund tonn á milli fiskveiðiára en bæði árin varð loðnubrestur eins og alkunna er. Kolmunnaaflinn dróst saman um rúmlega 25 þúsund tonn. Afli í íslenskri síld dróst saman um 8 þúsund tonn á milli fiskveiðiára, fór úr 41 þúsund tonnum í tæplega 33 þúsund tonn, en afli í norsk-íslenskri síld jókst úr 89 þúsund tonnum í rúmlega 109 þúsund tonn.
Yfirlit yfir aflabrögð, kvótamál og tegundir veiða á fiskveiðiárinu 2019/2020
Afli íslenska fiskiskipaflotans undanfarin ár
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst