Fiskveiðisamningur við Færeyjar undirritaður

Rammasamningur um fiskveiðar milli Íslands og Færeyja var undirritaður í utanríkisráðuneytinu á föstudag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Jenis av Rana, utanríkis- og menningarmálaráðherra Færeyja, skrifuðu undir samninginn.

Undirritunin fór fram á fundi ráðherranna þar sem samskipti landanna á breiðum grundvelli voru til umfjöllunar, meðal annars út frá tillögum í skýrslu frá starfshópi frá september 2021, um samskipti Íslands og Færeyja og tillögur til framtíðar.

Rammasamningurinn mælir fyrir um breytingar á núverandi samningsframkvæmd ríkjanna um að hverfa frá gerð árlegs bréfskiptasamnings um fiskveiðar í lögsögu ríkjanna, sem lagður hefur verið fyrir Alþingi á hverju haustþingi. Framvegis, eftir að samningurinn hefur verið fullgiltur, verður heimilt að semja um þessi fiskveiðiréttindi, sem og önnur skyld atriði, á samráðsfundum ríkjanna. Þeir verða haldnir árlega á grundvelli heimildar í rammasamningnum. Viðræður milli ríkjanna um breytta framkvæmd hafa staðið yfir um nokkurra ára skeið. Í rammasamningnum leggja ríkin áherslu á áframhaldandi nána samvinnu í tengslum við fiskveiðar og að tryggja áfram ábyrgar fiskveiðar, verndun og sjálfbæra nýtingu lifandi sjávarauðlinda til lengri tíma.

Þau Þórdís Kolbrún, Jenis av Rana og Vivian Motzfeldt, utanríkisráðherra Grænlands, áttu einnig fund öll saman í utanríkisráðuneytinu síðdegis þar sem utanríkisráðherra lagði ríka áherslu á mikilvægi samvinnunnar við næstu nágranna okkar. Á fundinum upplýstu ráðherrarnir sömuleiðis um gang mála í viðskiptum og menningarsamvinnu.

„Samskipti Íslands við Færeyjar og Grænland er bæði mikil og traust og í þeim felast fjölmörg tækifæri til að þróa enn frekar eins og fram kemur í nýlegum skýrslum þar sem nýir samstarfsfletir eru kortlagðir. Það er mín ósk að frekari innleiðing markmiða um aukna samvinnu þjóðanna muni ganga hratt og örugglega fyrir sig. Samband okkar við þessa næstu nágranna er okkur afar mikilvægt,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra.

Þá funduðu þær Þórdís Kolbrún og Vivian Motzfeldt um samskipti Íslands og Grænlands. Þar var meðal annars til umræðu nýundirrituð samstarfsyfirlýsing Íslands og Grænlands og samstarf á sviði loftslagsmála, viðskipta, heilbrigðismála, menntunar, jafnréttismála og ferðamála.

Nýjustu fréttir

Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Við þurfum að hætta þessum bútasaumi
Úr fótbolta yfir í hlaup
Aníta Sif er Eyjamaður mánaðarins
Samfélag fyrir fjölskyldur

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.