Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins sendi í byrjun mars fyrirspurn á Svandísi Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra varðandi fjárveitingar til Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja, fjölda ársverka og þróun launakostnaðar. Hún hefur nú svarað fyrirspurnum hans og sagði Birgir að svarið staðfestir það að sameiningin við HSU fól í sér fækkun stöðugilda í Vestmannaeyjum um 5 ársverk. „Árið 2013 voru þau 67,5 en árið 2017 eru þau 62. Í svarinu er sett fram tafla sem sýnir rekstrarkostnað og hækkun framlaga til HSV en á sama tíma færri stöðugildi á launum. Þetta skýrist fyrst og fremst af launahækkunum og launaskriði en ekki aukinni starfsemi eða þjónustu. Í svarinu kemur fram að fækkun hafi átt sér stað í hópi æðstu stjórnenda HSV. Dýrustu stöðugildin voru því lögð niður í Eyjum við sameininguna. Ekki er hægt að sjá að sá launasparnaður sem því fylgdi hafi nýst stofnuninni. Ég er þeirrar skoðunar að fjármagnið sem sparaðist við þessa ráðstöfun hefði átt að nýtast áfram í Eyjum, í heilbrigðisþjónustu við íbúanna. Auk þess varð bæjarfélagið af útsvarstekjum við þessa breytingu.“ Birgir sagðist ætla fylgja þessu máli eftir í fjárlagavinnunni fyrir árið 2019, sem hefst í haust.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.