Fjögur rauð spjöld og ÍBV jafnaði einvígið

ÍBV tók á móti Haukum nú í kvöld í öðrum leik liðanna í 8-liða úrslitum Olís-deildar karla.

Leikurinn var í járnum allt frá byrjun til enda og skiptust liðin á að leiða. Eyjamenn náðu fimm marka forrystu um miðbik fyrri hálfleiks, 9-5, en Haukar náðu að snúa því við og leiddu með einu marki, 18-19, þegar loks var gengið til leikhlés 50 mínútum frá því að leikurinn hófst. En stoppa þurfti leikinn á 15. mínútu meðan hlúað var að Degi Arnarsyni, leikmanni ÍBV, eftir að Darri Aronsson sló í andlit hans og hlaut réttilega að launum rautt spjald. Dagur jafnaði sig þó fljótlega og var aftur mættur í sóknina skömmu síðar.

Síðari hálfleikurinn var svo meira af því sama, gríðarlegri baráttu og hörku. Liðin skiptust á að leiða með einu til tveimur mörkum. Hákon Daði Styrmisson jafnaði leikinn 29-29 þegar tvær mínútur voru til leiksloka. Haukar töpuðu þá tvívegis boltanum og ÍBV náði tveggja marka forskoti. Lokatölur í kvöld 32-30 og jafnt í einvíginu 1-1. Það er því ljóst að leikið verður að minnsta kosti einn leikur enn í Eyjum en þrjá sigra þarf til að tryggja sér þátttöku í úrslita viðureigninni.

Mikil harka var í leiknum allan tímann sem minnti oft á tíðum á eitthvað allt annað en handbolta. Til marks um hörkuna í leiknum þá litu fjögur rauð spjöld litu dagsins ljós í kvöld tvö á hvort lið. Eyjamenn voru útaf í 12 mínútur og Haukar í 22.

Markahæstur í liði Eyjamanna var sem fyrr Hákon Daði Styrmisson með átta mörk þar af fjögur úr víti. Aðrir markaskorarar voru Gabríel Martinez – 6, Kristján Örn Kristjánsson – 5, Dagur Arnarsson – 5, Fannar Þór Friðgeirsson – 4, Sigurbergur Sveinsson – 2, Daníel Örn Griffin – 1 og Kári Kristján Kristjánsson – 1. Björn Viðar Björnsson varði fjórtán skot í marki ÍBV.

Næsta viðureign liðanna verður á heimavelli Hauka í Hafnafirði á sunnudaginn kl. 16.00.

Nýjustu fréttir

Maí sól – Lag til ömmustelpurnar
Styrkir veittir til fjölbreyttra verkefna
Neyðarkall úr Eyjum
Sigmundur Davíð með opinn fund
Hæsti styrkurinn til Eyja
Dýptarmæling í dag
Eyjalistinn í sókn: Heimasíða og stefnuskrá líta dagsins ljós!
Vinnandi hendur frá hafi til hátíðarborðs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.