Rauði krossinn er elsta og virtasta mannúðarhreyfing í heimi og starfar í 189 löndum heims. Starfsemin um allan heim byggir á sjálfboðnu starfi, og í öllum landsfélögum, hvar sem er í heiminum, er unnið eftir sömu grundvallarhugsjónum. Hér á landi hefur Rauði krossinn verið starfandi síðan 1924. Deildir félagsins, sem nú eru 44 talsins, eiga það sameiginlegt að þjóna samfélaginu sem þær starfa í.
Vestmanneyjadeildin sem fagnar sínu 73. aldursári var stofnuð af �?lafi Lárussyni lækni í Arnardrangi sunnudaginn 23. mars 1941 og var �?lafur formaður deildarinnar í mörg ár. Rauði krossinn í Vestmannaeyjum eignast síðan húsið Arnardrang árið 1998 og hefur látið gera miklar endurbætur á húsinu, sem í dag er mikil bæjarprýði eins og á árum áður. Starfsemi deildarinnar tók mikinn fjörkipp við að komast í eigið húsnæði og hefur starfið aldrei verið kröftugra en núna og gaman að eignast húsnæðið þar sem deildin var stofnuð í upphafi.
Rauði krossinn 90 ára
Í ár eru 90 ár frá stofnun Rauða krossins og af því tilefni verður félagið með skyndihjálparátak allt árið. Markmið átaksins er að byggja upp kunnáttu og færni almennings í skyndihjálp, þekkingu sem situr eftir með þjóðinni, og auka þannig líkur á því að fólk hafi grunnþekkingu á því hvernig hægt er að bjarga mannslífi á neyðarstundu. Rauði krossinn mun standa að kynningarherferð út árið og sem afmælisgjöf til þjóðarinnar verður fólki kennt að beita endurlífgun, losa aðskotahlut úr hálsi, bregðast við bruna og blæðingu.
Skyndihjálp – Nýtt App
Skyndihjálparátakið hófst með því að kynna skyndihjálparapp Rauða krossins, sem er hægt að nálgast á vefsíðu Rauða krossins www.skyndihjalp.is. Appið er ókeypis, og þar má nálgast helstu upplýsingar um skyndihjálp settar fram á aðgengilegan hátt, prófa þekkingu sína, skoða myndbönd, og ef um neyðarástand er að ræða er hægt að ná beinu sambandi við Neyðarlínuna.
Appið hefur fengið frábærar viðtökur, og nú þegar hafa um 14.400 manns sótt forritið sem er um 4,5% þjóðarinnar. Nú þegar hefur appið sannað gildi sitt, því dæmi eru til um að það hafi hjálpað fólki að bregðast rétt við neyð, og vill Rauði krossinn því hvetja fólk til að nýta sér þessa tækni til að auka þekkingu sína og færni í að bregðast við í neyð. Rétt er að ítreka að appið er ókeypis.
Rauði kross Vestmanneyja býður upp á fjölbreytt námskeið í skyndihjálp og er fólki bent á að hafa samband við deildina á netfanginu vestmannaeyjar@redcross.is eða koma við í húsnæði deildarinnar við Hilmisgötu á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 16:00 til kl. 18:00 en þá er opið í Arnardrangi eða hringja í síma 481-1956 á opnunartíma.
Einnig viljum við í Vestmannaeyjadeild hvetja fyrirtæki til að taka þátt í þessu átaki og bjóða starfsfólki sínu upp á skyndihjálparnámskeið.
�?að er staðreynd að oftast eru það samstarfsmenn, vinir eða ættingjar sem fyrstir koma á vettvang þegar einhver slasast eða veikist alvarlega. Stutt skyndihjálparnámskeið getur því gert fólki kleift að bjarga mannslífi þegar mínútur skipta máli.
Rauði krossinn býður upp á sérsniðin skyndihjálparnámskeið fyrir vinnustaði.
Verkefni
Hjá deildinni starfa heimsóknavinir, en það eru sjálfboðaliðar sem rjúfa einangrun fólks, veita félagsskap og sýna vináttu með heimsóknum til þeirra sem þess óska. Heimsóknir eru bæði á einkaheimili og dvalarheimili. Sjálfboðaliðar sækja undirbúningsnámskeið hjá deildum áður en heimsóknir hefjast og eru þeir bundnir trúnaði.
Verkefnið �??Föt sem framlag�?? er fyrirferðarmikið hjá Vestmannaeyjadeild og starfar fjöldi kvenna á öllum aldri við að útbúa fatapakka fyrir ungbörn í fátækari löndum heims. �?ær prjóna, hekla og sauma alls konar fatnað og flokka einnig nýtanlegan fatnað úr fatnaði sem komið er með í Arnardrang í hverri viku. �?ar er mikið af hlýjum fatnaði aldursflokkað og pakkað fyrir eldri börn og unglinga og er sá fatnaður mest sendur til Hvíta-Rússlands. Deildin hvetur fólk til að koma með allan fatnað til okkar í Arnardrang því mikil verðmæti liggja í öllum fatnaði, sama þó fólki finnist hann jafnvel útslitinn eða ónýtur.
Neyðarvarnir eru einn af hornsteinum Rauða krossins. Almannavarnir hafa haft skriflegt samkomulag við Rauða krossinn síðan 1974 um hlutverk félagsins innan almannavarna og er samkomulagið í raun kjarninn í öllu neyðarvarnarkerfi Rauða krossins. Hér í Vestmannaeyjum höfum við ávallt tekið þátt í flugslysaæfingum, tekið út fjöldahjálparstöð og sett upp skipulag fyrir stjórnstöð ef eitthvað stórt kemur upp á í bæjarfélaginu.
Í tilefni af 90 ára afmælisári Rauða kross hreyfingarinnar á Íslandi var opnuð ný Neyðarmiðstöð Rauða krossins á Íslandi í húsi félagsins í Efstaleiti 9. Neyðarmiðstöðinni er ætlað að samhæfa betur neyðarviðbrögð félagsins á tímum áfalla. �?ar verða sameinuð undir einum hatti verkefni Rauða krossins í neyðarvörnum, skyndihjálp, áfallahjálp og sálrænum stuðningi.
�?að er gott að geta gleymt sér um um stund í góðu og gefandi sjálfboðaliðastarfi, það sýna og sanna þeir fjölmörgu sjálfboðaliðar sem nú þegar taka þátt í starfinu hjá okkur. Sjálfboðaliðum stendur til boða margvísleg fræðsla og þjálfun í tengslum við störf sín.
Fyrir þá sem hafa áhuga að kynna sér starfið og vilja leggja deildinni lið er hægt að hafa samband við okkur í Vestmannaeyjadeild.
Aðalfundur Rauða kross Vestmannaeyja verður haldinn þriðjudaginn 25. febrúar í Arnardrangi og hefst kl. 20:00 og eru allir Vestmannaeyingar hvattir til að mæta.