Fjölbreytt tómstundastarf kynnt í Íþróttamiðstöðinni
Leikfélag Vestmannaeyja kynnti starfsemi sína á tómstundahlaðborðinu í Íþróttamiðstöðinni í dag. Ljósmyndir: Halldór B. Halldórsson.

Tómstundahlaðborð var haldið í sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Vestmannaeyjum í morgun. Þar kynntu félög, samtök og aðrir aðilar starfsemi sína fyrir fólki á öllum aldri.

Á hlaðborðinu mátti kynna sér fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf í Eyjum. Meðal þátttakenda voru íþróttafélög, kórar, lúðrasveitir, félög á sviði leiklistar og lista, hjálparsamtök og félög sem sinna heilsu og félagsstarfi.

Tilgangur viðburðarins var að gefa börnum, ungmennum og fullorðnum tækifæri til að sjá hvað er í boði, ræða við fólkið á bak við starfið og jafnvel finna sér nýtt áhugamál. Halldór B. Halldórsson fór á tómstundahlaðborðið fyrir Eyjafréttir og tók myndband og myndir. Hér fyrir neðan má sjá svipmyndir frá viðburðinum.

Play Video

Nýjustu fréttir

Smári Jökull hjá Sýn 
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum? Ráðherra tekur jákvætt í hugmyndina
Ítalía mun alltaf eiga sérstakan stað í hjartanu
Vestmannaeyjabær óskar eftir niðurstöðum úr PISA
Sæðisprufan hans Sigurgeirs vakti mikla kátínu
Ólöf Ragnarsdóttir, fréttakona á RÚV 
Hekla bætti eigið met og varð efst kvenna
Vilja taka upp daggjald í Frístund
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.