Fjöldatakmarkanir verða 20 manns og nándarregla 2 metrar
Folk Margmenni2
Fjölmargir skiluðu inn hugmyndum til ríkisstjórnarinnar.

Almennar fjöldatakmarkanir verða 20 manns og nándarregla 2 metrar í stað 1 með ákveðnum undantekningum. Veitinga- og skemmtistöðum, krám og öðrum stöðum með vínveitingaleyfi ber að loka kl. 21 á kvöldin. Sund- og baðstöðum, líkamsræktarstöðvum og skíðasvæðum verður heimilt að taka á móti 50% af hámarksfjölda. Hraðprófsviðburðir verða takmarkaðir við 200 manns. Hvatt verður til fjarvinnu á vinnustöðum eins og kostur er. Þetta er megininntak hertra innanlandstakmarkana sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis til að sporna við hraðri útbreiðslu Covid-smita. Reglugerð þessa efnis tekur gildi fimmtudaginn 23. desember og gildir í þrjár vikur.

Smitum af völdum Covid-19 hefur fjölgað hratt hér á landi síðustu daga og eru nú að jafnaði um og yfir 200 á dag. Þann 18. desember sl. höfðu um 150 manns greinst með veiruafbrigðið ómíkron sem er a.m.k. helmingi meira smitandi en delta-afbrigðið. Það breiðist nú hratt út hjá grannþjóðum. Í Danmörku veldur það nú um 30% allra smita þar sem greinast nú milli  8.000 og 11.000 smit daglega. Innlögnum á sjúkrahús í Danmörku hefur fjölgað samhliða og stefnir í nýtt met segir í minnisblaði sóttvarnalæknis. Gera megi ráð fyrir að ómíkron verði allsráðandi í faraldrinum hér á landi á næstu vikum, líkt og í öðrum löndum. Þótt vísbendingar séu um vægari veikindi af völdum ómíkron en delta sé líklegt að vegna hraðrar útbreiðslu muni mikill fjöldi sjúklinga þurfa að leggjast inn á sjúkrahús þótt alvarleg veikindi séu fátíðari en af völdum annarra afbrigða. Enn fremur bendir sóttvarnalæknir á að samkvæmt rannsóknum sé lítil sem engin vernd af tveimur bólusetningum gegn ómíkron, verndin aukist umtalsvert með örvunarbólusetningu en óljóst sé hve góð sú vernd er og hve lengi hún varir. „Ég tel því óhjákvæmilegt að gripið verði til hertra sóttvarnaaðgerða innanlands eins fljótt og auðið er áður en aukning í smitum skapar hér neyðarástand á sjúkrahúsum og ýmsum innviðum“ segir sóttvarnalæknir.

Meginefni nýrra sóttvarnareglna:

  • Almennar fjöldatakmarkanir 20 manns og börn ekki undanskilin.
  • Nándarregla 2 metrar. Börn fædd 2016 og síðar eru undanþegin. Á veitingastöðum og meðal gesta á sitjandi viðburðum er nándarregla 1 metri milli sitjandi gesta.
  • Grímuskylda: Almennt er skylt að nota grímu ef ekki er hægt að virða 2 metra regluna. Börn fædd 2006 og síðar eru undanþegin grímuskyldu.
  • Hraðprófsviðburðir: Með notkun hraðprófa er heimilt að halda skipulagða viðburði fyrir allt að 200 manns í sóttvarnahólfi.
  • Sitjandi viðburðir án hraðprófa: Hámarksfjöldi 50 manns. Sem dæmi má nefna sviðslistaviðburði, kvikmyndasýningar, íþróttaviðburðir og sitjandi athafnir trú- og lífskoðunarfélaga.
  • Verslanir og söfn mega taka á móti 50 manns í hverju hólfi að börnum meðtöldum. Fyrir hverja 10 m² má bæta við fimm viðskiptavinum að hámarki 500 manns. Grímuskylda er í verslunum.
  • Opnunartími veitingastaða o.fl.: Veitingahúsum og öðrum stöðum þar sem áfengisveitingar eru heimilar er óheimilt að hleypa inn nýjum viðskiptavinum eftir kl. 21.00 og allir gestir eiga að vera farnir hið síðasta kl. 22.00. Sama gildir um einkasamkvæmi á stöðum með vínveitingaleyfi. Nándarregla milli sitjandi gesta á veitingastöðum er 1 metri.
  • Sund- og baðstaðir, líkamsræktarstöðvar og skíðasvæði: Heimilt er að taka má móti 50% af hámarksfjölda gesta. Börn fædd 2016 og síðar teljast ekki með.

Skólahald

  • Á öllum skólastigum miðast hámarksfjöldi barna/nemenda við 50 einstaklinga í rými.
  • Hámarksfjöldi starfsfólks í sama rými eru 20 manns og starfsfólki er heimilt að fara á milli rýma.
  • Nálægðarmörk: Almennt gildir 2 metra nálægðarregla en sé ekki unnt að tryggja 2 metra reglu er grímuskylda. Leikskólabörn eru undanskilin nálægðarreglu.
  • Grímuskylda: Almennt er skylt að nota grímu ef ekki er hægt að virða 2 metra regluna. Börn fædd 2006 og síðar eru undanþegin grímuskyldu.

Sviðslistir og kórastarf

  • Æfingar og sýningar með snertingu eru leyfðar fyrir allt að 50 starfsmenn á sviði. Grímur skal nota eftir því sem hægt er nema þegar listflutningur fer fram og leitast við að fylgja 2 metra reglunni.
  • Fjöldi sýningargesta: Heimilt er að taka á móti allt að 50 sitjandi gestum í hverju hólfi sem allir bera grímu og sitja í númeruðum sætum. Auk 50 fullorðinna mega vera 100 börn án hraðprófs í sama rými. Hægt er að taka á móti allt að 200 gestum sé fylgt reglum um hraðprófsviðburði. Viðhafa þarf 1 metra reglu milli sitjandi gesta.
  • Sýningarhlé: Heimilt er að gera hlé á sýningum en áhorfendur skulu hvattir til að halda kyrru fyrir í sætum sínum.
  • Áfengisveitingar eru óheimilar í tengslum við sýningar, hvort sem er fyrir, í hléi eða eftir.

Íþróttaæfingar og keppnir barna og fullorðinna eru heimilar, jafnt með eða án snertingar, fyrir allt að 50 manns.

Fjarvinna

  • Hvatt er til fjarvinnu á vinnustöðum eftir því sem mögulegt er.

Minnisblað sóttvarnalæknis

Reglugerð um samkomutakmarkanir (verður birt síðar í dag)

Nýjustu fréttir

Innviðaráðherra og forstjóri Vegagerðarinnar heimsóttu borstæði Eyjaganga
Tólf ferðir á dag til og frá Eyjum frá 8. júní – uppfært
Högum okkur
Herjólfur frestar 8 ferða áætlun 
Karlakór Vestmannaeyja með vortónleika
Eyjagöng: Borað yfir 120 metra á rúmri viku
Nei, það er ekki glæpur
Nethamar hætt starfsemi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.