Flugfélagi Íslands þá voru bókanir mjög góðar enda styttist óðfluga í hátíðina. Á fimmtudag eru settar 3 vélar og voru örfá sæti laus. Föstudaginn 30. júlí eru settar á áætlun 7 vélar, þar af var uppselt í 3. Á laugardag og sunnudag eru 2 vélar settar á og laust í báðar. Mánudaginn 2. ágúst þá er mjög mikil bókun enda flestir á heimleið eftir fanta góða skemmtun. Settar hafa verið 13 vélar inn og þar af uppselt í 9 vélar.