Fjölgun á Sæheimum
Í gær kom áhöfnin á Drangavík VE færandi hendi á Sæheima. Færðu þeir safninu fjölda dýra sem þeir söfnuðu í síðasta halinu. �?ar á meðal var gaddakrabbi, kolkrabbi, humar, öðuskel, hörpuskel, sundkrabbi o.fl. Dýrin voru öll mjög spræk og eru nú að kanna aðstæður í nýjum heimkynnum. �?að er frábært fyrir safnið að fá slíkar gjafir segir á heimasíðu þeirra ekki er nóg með að nýir fiskar séu komnir heldur er kominn annar rituungi í Sæheima. Strákurinn sem kom með hann á safnið heitir Ísak og er frá Reykjavík. Hann var í Vestmannaeyjum í fyrra og fann þá einnig rituunga sem hann kom með í Sæheima. �?essi ungi fékk nafnið Dindill. Hann var frekar slappur en er búinn að fá að éta og er nú aðeins hressari.

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjabær áfrýjar sýknudómi vegna vatnslagnarinnar
Frá Portúgal til Vestmannaeyja
„Við erum orðin skuldlaus“
Vinnslustöðin styrkir stöðu sína í Portúgal
Herjólfur aftur í fulla áætlun á morgun
Góð spá og lokaspretturinn hafinn fyrir Þjóðhátíð
Hafbotnsmælingum lokið – Komnir niður á 136 metra í Landeyjasandi
Flugmenn sviptir flugleyfi vegna lágflugs yfir Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.