Fjölskylduafþreying í íþróttahúsinu

Leikhöllin í samstarfi við Vestmannaeyjabæ stendur fyrir fjölskylduafþreyingu í íþróttahúsinu á morgun, fimmtudaginn 14. maí frá klukkan 10:00 til 14:00 í Sal 1.

Viðburðurinn er opinn öllum og frítt er inn. Markmiðið er að bjóða fjölskyldum að koma saman, hreyfa sig, eiga góða stund og njóta dagsins í skemmtilegri stemningu.

Í boði verða boltaleikir, þrautabraut og hoppukastali fyrir börnin auk þess sem Doctor Victor mætir og spilar ljúfa tóna. Þá verður Eydís Ísbúð með léttar veitingar til sölu og einnig verður smakk í boði fyrir gesti.

Þetta er í annað sinn sem fjölskyldudagur sem þessi er haldinn en síðasti viðburður heppnaðist einstaklega vel og var mæting góð.

Frítt er inn og allir eru velkomnir.

Nýjustu fréttir

Kostnaður við NSL-4 stefnir í 3,1 milljarð – umfang tjónsins enn óljóst
Metþátttöku í Sumarlestri fagnað með lokahófi
Snýr aftur til Eyja með penslana í farteskinu
Landað í lok kvótaárs
100 ára afmælisblað Taflfélagsins – prentútgáfa og vefblað
Anika Hera tekur næsta skref í þjálfun
Farþegum með Herjólfi fækkar um rúm 14 prósent
Tómas Bent og félagar í Hearts tryggðu sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.