Fjölskyldustemning á Hásteinsvelli þegar topplið ÍBV fær Þór/KA í heimsókn
Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV tekur á móti Þór/KA á Hásteinsvelli í dag í 4. umferð Bestu deildar kvenna. Flautað verður til leiks klukkan 14:00.

Eyjakonur hafa farið frábærlega af stað í sumar og unnið alla þrjá fyrstu leiki sína í deildinni. ÍBV er því í 2. sæti deildarinnar með níu stig, jafnmörg og topplið Breiðabliks, en með lakari markatölu.

ÍBV hefur skorað tíu mörk í fyrstu þremur leikjunum og fengið á sig sjö. Þór/KA kemur hins vegar stigalaust til Eyja eftir fyrstu þrjár umferðirnar og verður því í mikilli þörf fyrir stig.

Knattspyrnudeild ÍBV ætlar einnig að gera sérstaklega vel við stuðningsfólk í tilefni mæðradagsins og verður sannkölluð fjölskyldustemning á Hásteinsvelli.

Í hálfleik verður sérstakur kosningaleikur þar sem tvær mæður frá hverju framboði í Vestmannaeyjum keppa í vítaspyrnukeppni. Í markinu verður Ísey, sem samkvæmt tilkynningu frá knattspyrnudeildinni hefur fyrir löngu unnið sér inn orðspor sem sannkallaður vítabani. Knattspyrnudeildin hvetur Eyjamenn til að fjölmenna á völlinn og styðja við bakið á liðinu.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Þrótti R. á Hásteinsvelli
Stefnt að styttingu Hörgaeyrargarðs í lok september
Livey tekur við streymi Olísdeildarinnar
Kristín skipuð í nýtt embætti sýslumanns
Opinn fundur um þjóðaratkvæðagreiðsluna
ESB-aðild gæti fært störf og verðmæti úr landi að mati SFS
Eyjakonur geta endurheimt þriðja sætið
Færri íbúðir og minna byggingarmagn við Strandveg 44
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.