Fleiri sem geta tekið af skarið hjá ÍBV
Kvennalið ÍBV lagði HK að velli í dag í Eyjum í Olísdeildinni en lokatölur urðu 26:20 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 11:8. ÍBV var með yfirhöndina allan tímann, HK komst aldrei yfir og náði ekki einu sinni að jafna metin. Engu að síður gekk Eyjaliðinu illa að hrista frískt lið HK af sér en það hafðist þó í síðari hálfleik þegar ÍBV komst 26:17 en gestirnir skoruðu þrjú síðustu mörk leiksins og náðu aðeins að laga stöðuna.
�?rátt fyrir að ÍBV hafi spilað betur í sókninni, þá var margt afar jákvætt við leik liðsins. �?annig skoraði helsti markaskorari liðsins, Vera Lopes aðeins eitt mark en aðrir leikmenn tóku þá einfaldlega við keflinu. Hin bráðefnilega Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði átta mörk, Jóna Sigríður Halldórsdóttir sex og Ester �?skarsdóttir fimm. Í lok leiks fengu varamenn ÍBV liðsins að spreyta sig og var allt byrjunarliðið tekið af velli þegar um tíu mínútur voru eftir. �?að er líka jákvætt að ÍBV sé með svona marga leikmenn sem geta komið inn á, ef meiðsli ber upp á. �?á má ekki gleyma því að báðir markverðir ÍBV liðsins vörðu 50% skota sinna eða meira.
Mörk ÍBV: Díana Dögg Magnúsdóttir 8, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 6, Ester �?skarsdóttir 5, Telma Amado 4, Elín Anna Baldursdóttir 2, Vera Lopes 1.
Varin skot: Dröfn Haraldsdóttir 17 (51% skota varin), Erla Rós Sigmarsdóttir 3 (50% skota varin).

Nýjustu fréttir

Skólalóðin
Fagleg nálgun Eyjalistans í leikskólamálum
Snorri í Miðgarði
Karlalið ÍBV tapaði á Akureyri
Eyjablikksmótið fór fram í Eyjum um helgina
Frábær byrjun hjá ÍBV stelpunum heldur áfram – Heimasigur gegn Þór/KA
Dómkórinn með glæsilega tónleika
Ekki bíða, taktu þátt núna
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.