Fjöldi ferðamanna hefur margfaldast í Eyjum eftir að Landeyjahöfn opnaði en farþegar um höfnina nýju eru orðnir fleiri en 50 þúsund talsins frá því 21. júlí. Verslunareigendur og aðrir þjónustuaðilar í Vestmannaeyjum hafa ekki farið varhluta af þessu og á góðviðrisdögum hefur verið mikið líf í miðbæ Vestmannaeyja. Og samkvæmt heimasíðu Landakirkju, þá eru ferðamenn líka andlega þenkjandi því fjöldi gesta í kirkjuna hefur margfaldast.