Flóðljósin á Hásteinsvelli komin í gagnið
Eitt af nýju flóðljósamöstrunum við Hásteinsvöll reist. Öll möstrin eru nú komin upp og ljósin tekin í notkun, en enn á eftir að setja upp ljósastýringu. Mynd: Vestmannaeyjabær.

Öll möstrin fyrir nýju flóðljósin á Hásteinsvelli eru risin og ljósabúnaðurinn hefur verið tekinn í notkun. Enn á þó eftir að ljúka frágangi við möstrin og setja upp ljósastýringu, að því er fram kemur í frétt á vef Vestmannaeyjabæjar.

Búnaðurinn fyrir ljósastýringuna er væntanlegur í október. Þangað til er aðeins hægt að kveikja á ljósunum á fullum styrk, 500 lux. Þegar stýringin verður komin upp verður einnig hægt að stilla lýsinguna á 300 lux fyrir leiki í meistaraflokki og 200 lux fyrir æfingar og leiki yngri flokka. Fullur styrkur er ætlaður fyrir keppnisleiki sem sýndir eru í sjónvarpi.

Vestmannaeyjabær stefnir að formlegri vígslu flóðljósanna í október, þegar framkvæmdum verður lokið. Nánari upplýsingar um vígsluna verða birtar á miðlum bæjarins þegar nær dregur.

Nýjustu fréttir

Elísa Viðarsdóttir leggur skóna á hilluna
Íþróttamaður mánaðarins – Milena Mihaela Patru
Herjólfur III tilbúinn til afleysinga
Sigur hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Póllandi
Freyja flutti búnað fyrir radarhýsi til Eyja
Það á að hrósa því sem vel er gert
Hádegismatur með fjölskyldunni forréttindi 
Stærsti kosturinn að geta búið í Eyjum 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.