Húkkaraballið er í kvöld

Húkkaraballið er í kvöld og er dagskráin í ár þétt skipuð og glæsileg. Ballið er í portinu bakvið Strandveg 50 (gamla Þekkingarsetrinu) Dagskrá Húkkaraballsins: JóiPé og Króli Herra Hnetusmjör Sura Baldvin x Svanur x Hjalti DJ Egill Spegill Þorri Huginn (meira…)
Fallega Þenkjandi Stúlkur Með Tombólur

Margrét Mjöll Ingadóttir og Hekla Katrín Benónýsdóttir 7 að verða 8 ára gáfu heimilismönnum á Hraunbúðum 7.639 kr sem þær höfðu safnað á tombólu. Tekin var sameiginleg ákvörðun með þeim og heimilisfólki að kaupa þjóðhátíðarskraut á sólpallinn sem hægt væri að nota í árlegum þjóðhátíðarpartýum á staðnum. Þær stöllur vildu endilega að krakkar væru líka […]
Er gerræði hið nýja aukna lýðræði?

Nýr meirihluti bæjarstjórnar boðaði í aðdraganda kosninga aukið íbúalýðræði, vandaðri stjórnsýslu og lagði mikla áherslu á aukið upplýsingaflæði og samvinnu. Nú þegar nokkrar vikur eru liðnar af kjörtímabilinu eru fulltrúar meirihlutans komnir í hróplega mótsögn við sjálfa sig og hafa þverbrotið kosningaloforðin. Boðað til hluthafafundar í stjórn Herjólfs ohf. án umboðs bæjarstjórnar Á fundi bæjarráðs […]
Við þurfum að hafa hugrekki til þess að horfa fram á við

Sagt er að það sé mikilvægt að hafa ekki öll eggin sín í sömu körfu og á meðan störfum hefur fækkað í sjávarútvegi þá fjölgar störfum hratt í ferðaþjónustu hér í Eyjum. Eyjamenn hafa því á undanförnum árum fengið sístækkandi körfu með nýjum eggjum. Unga kynslóðin sem áður vann í fiski starfar nú í ferðaþjónustu. […]
Mættur til Eyja til þess að taka upp sjónvarpsþátt

Hann kallar sig læknirinn í eldhúsinu þegar hann sinnir ástríðu sinni að eldamennskunni en heitir Ragnar Freyr Ingvarsson og er lyf- og gigtarlæknir og er hann með vefsíðuna sem ber einmitt heitið Læknirinn í Eldhúsinu. Hann hefur skrifað matreiðslubækur og tekið upp fjölda sjónvarpsþátta þar sem hann kynnir sér mat og matarmenningu. Um þessar mundir er hann önnum […]
Að komast leiðar sinnar

Á stærstu ferðahelgum sumarsins hér í Eyjum búum við heimamenn – og raunar gestir okkar líka – við skert ferðafrelsi; umfram það sem við þurfum að þola venjulega. Þetta er ekkert nýtt – svona hefur þetta verið um langt skeið. Allir þessir skemmtilegu viðburðir sumarsins – Pæjumót, Orkumót, Goslok og núna Íslandsmótið í golfi – […]
Ekki vera fáviti – Myndband

„Ofbeldi er samfélagslegt vandamál. Ábyrgð á ofbeldisverki ber þó gerandinn einn. Aldrei má deila þeirri ábyrgð; hvorki á fórnarlambið né aðstæður og umhverfi. Gerandinn ber einn alla sök. Þeir sem standa að Þjóðhátíð Vestmannaeyja munu aldrei samþykkja eða þagga niður ofbeldisverk, hvort sem þau eru framin á vettvangi hátíðarinnar eða annars staðar. ÍBV Íþróttafélag fordæmir […]
Tónleikar Sunnu á Slippnum

Sunna Guðlaugsdóttir er flestum Eyjamönnum góðu kunn, hún hefur sungið sig inní hjörtu eyjamanna á síðustu árum. Sunna vinnur nú að því að gefa út sína fyrstu plötu og ætlar að fara aðeins öðruvísi leið til þess að láta þann draum sinn rætast. Á fimmtudaginn spilaði Sunna á Slippnum ásamt dönskum og íslenskum félögum sínum. Hún […]
Myndlistarsýning Steinunnar

Um helgina mun Steinunn Einarsdóttir myndlistarkona halda sölusýningu á verkum sínum. Á sýningunni verða verk af öllum stærðum og gerðum og frá hinum ýmsum tímabilum. Í tilefni þess að hún er að flytja í nýtt húsnæði verða verkin seld með miklum afslætti. Sýningin verður haldin á gamla heimilinu hennar að Vestmannabraut 36, efri hæð. Sýningin […]
Elliði Vignisson ráðinn bæjarstjóri í Ölfusi

Elliði Vignisson hefur verið ráðinn bæjarstjóri Sveitarfélagsins Ölfuss. Var það samþykkt á bæjarstjórnarfundi fyrr í dag, en þetta greindu Hafnarfréttir frá. Alls sóttu 23 einstaklingar um stöðuna en fimm drógu umsókn sína til baka og var Elliði því ráðinn úr hópi 18 umsækjenda. Elliði átti farsæl tólf ár hér hjá Vestmannaeyjabæ, en hann sinnti því starfi […]