Flottir tónleikar í Hvítasunnukirkjunni í gærkvöldi og verða aftur í kvöld
Í gærkvöldi voru haldnir skemmtilegir og flottir tónleikar í Hvítasunnukirkjunni þar sem saman voru komnar fjórar hljómsveitir sem spiluðu fyrir áhorfendur. Hljómsveitirnar komu alls staðar að, hjónin Thomas og Becky Gall frá Bretlandi, önnur kom frá Tennessee í Bandaríkjunum sem kallar sig Engraved Word Band, unglingahljómsveit Fíladelfíu og að lokum hljómsveitin Hinir �?tvöldu en hún er eingöngu skipuð Vestmanneyingum sem búsettur eru bæði hér í Eyjum og á fastalandinu. Mikil stemning var í húsinu og voru áhorfendur um sextíu talsins, hljómleikarnir verða aftur í kvöld klukkan 21:00 og eru opnir öllum. Eftir tónleikanna verður boðið upp á léttar veitingar með skemmtilegu spjalli.
Á morgun, sunnudag verður svo samkoma samkvæmt venju klukkan 13:00 með aðeins öðru sniði en hljómsveitirnar munu taka þátt í henni. Á þriðjudaginn verður kvikmyndin Most sýnd til að vekja fólk til umhugsunar en þetta er stutt 35 mínútna mynd.
�?skar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta var á tónleikunum í gærkvöldi og myndaði.

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.