ÍBV á fjögur lið í 16-liða úrslitum Coca-cola bikarsins

Fyrir skömmu var dregið í 16-liða úrslitum Coca-cola bikarsins í karla- og kvennaflokki þar sem ÍBV átti tvö lið í hvorum flokki. Bikarmeistarar ÍBV drógust gegn 1. deildar liði HK þar sem liðið er í sjötta sæti deildarinnar. ÍBV B dróst gegn toppliði Olís deildar karla, Val. Í kvennaflokki verður Stjarnan andstæðingur ÍBV en þær […]

Valur fyrsta liðið til að leggja ÍBV á tímabilinu

Val­ur og ÍBV mættust í ní­undu um­ferð Olís deild­ar kvenna í hand­knatt­leik í Voda­fo­ne-höll­inni í dag en leiknum lauk með stórsigri Vals, 28-17. Ester �?skardóttir meiddist í upphitun og kom ekkert við sögu í leiknum fyrr en á 40. mínútu. ÍBV skoraði fyrstu tvö mörk leiksins en Valur jafnaði metinn 3-3 og eftir það var […]

Flottir tónleikar í Hvítasunnukirkjunni í gærkvöldi og verða aftur í kvöld

Í gærkvöldi voru haldnir skemmtilegir og flottir tónleikar í Hvítasunnukirkjunni þar sem saman voru komnar fjórar hljómsveitir sem spiluðu fyrir áhorfendur. Hljómsveitirnar komu alls staðar að, hjónin Thomas og Becky Gall frá Bretlandi, önnur kom frá Tennessee í Bandaríkjunum sem kallar sig Engraved Word Band, unglingahljómsveit Fíladelfíu og að lokum hljómsveitin Hinir �?tvöldu en hún […]

Vilja auðvelda sykursjúkum að meðhöndla blóðsykurinn

Kominn er skriður á samstarf íslenska nýsköpunarfyrirtækisins Medilync og Landspítalans. Nýlega var gerður samstarfssamningur um prófanir á lausn fyrirtækisins fyrir sykursjúka sem á að auðvelda þeim daglegt líf og hjálpa þeim að meðhöndla blóðsykurinn betur til lengri tíma. �?etta kemur fram á vef Landspítalans, landspitali.is en Medilync, sem er í eigu Eyjamannanna Sigurjóns Lýðssonar og […]

Stelpurnar mæta Val – Leikurinn í beinni

ÍBV sækir Val heim þegar 9.umferð Olís deildar kvenna fer fram. Aðeins eru tveir dagar síðan lið ÍBV sigraða Gróttu, það er þétt dagskrá hjá stelpunum þessa daganna en stelpurnar mæta svo Haukum á þriðjudaginn. Fjögura stiga munur er á Val og ÍBV en Valur er í fimmta sæti deildarinnar með 12 stig en ÍBV […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.